Körfubolti

„Hefur tekið styttri tíma en ég bjóst við“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Emil Barja fer yfir málin með sínum konum
Emil Barja fer yfir málin með sínum konum Vísir/Pawel Cieslikiewicz

Emil Barja þjálfari toppliðs Hauka í Bónus-deild kvenna gat ekki verið annað en ánægður með frammistöðu síns liðs gegn Val í kvöld. Haukakonur höfðu mikla yfirburði gegn daufu Valsliði.

„Mjög ánægður. Allt sem við töluðum um var að ganga upp,“ sagði Emil en Haukar eru með fjögurra stiga forystu á toppi Bónus-deildarinnar.

„Þær hjálpa mjög djúpt á veiku hliðinni og við vorum að láta boltann ganga og fullt af sóknum hjá okkur sem voru frábærar fannst mér. Ég veit ekki hvað við enduðum með margar stoðsendingar í leiknum en þær voru margar. Ég er ánægður með að þó við höfum komist í ágætan mun þá var engin að setja einhver fjörtíu stig, þetta hélt áfram að vera liðsbolti.“

Emil vildi ekki meina að hann væri búinn að leggja sérstaka áherslu á sóknarleikinn á æfingum heldur ræddi um kjarnan í liðinu.

„Það er náttúrulega eitthvað farið yfir sóknarkerfi á hverri æfingu. Síðan erum við búin að spila saman í allan vetur og meirihlutinn af stelpunum saman í mörg ár. Þær þekkja hvor aðra vel og erlendu leikmennirnir hafa komið vel inn í þetta. Þetta er orðið mjög náttúrulegt og það er mjög gaman að sjá.“

Haukar þvinguðu Valsliðið í ansi marga tapaða bolta í leiknum og Valskonur lentu í vandræðum oft á tíðum með að koma boltanum upp völlinn því pressuvörn Hauka var öflug.

„Við reyndum aðeins að breyta henni í seinni hálfleik og vera aðeins grimmari. Mér fannst hún virka því þær voru að koma seint á klukkunni yfir miðjuna. Hún hefur virkað betur en mér fannst vörnin heilt yfir mjög góð líka, við vorum líka að neyða þær í tapaða bolta á hálfum velli.“

Emil sagðist vera afar ánægður með hvar Haukaliðið væri statt á þessum tímapunkti á tímabilinu.

„Við byrjuðum að undirbúa okkur mjög snemma. Það voru æfingar í júní með þessum íslensku stelpum þar sem við fórum yfir hvað við ætluðum að gera. Ég vissi að þetta tæki tíma en þetta hefur tekið styttri tíma en ég bjóst við. Mér datt ekki í hug að þetta yrði komið svona langt á þessum tímapunkti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×