Lífið

Gucci og glæsi­leiki á Ítalíu hjá Línu og Gumma

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Gummi kíró og Lína njóta lífsins á ítalskri grundu.
Gummi kíró og Lína njóta lífsins á ítalskri grundu.

Athafnakonan Lína Birgitta Sigurðardóttir og kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, eru í rómantísku fríi á Ítalíu. Parið eyddi fyrsta degi ferðalagsins í Flórens og eru nú komin til Rómaborgar þar sem þau drekka í sig ítalska menningu.

Parið hefur vakið mikla athygli í íslensku samfélagi undanfarin ár og er óhætt að segja að parið sé samstíga þegar kemur að tískuáhuga og samfélagsmiðlum. Síðan þá hef­ur ást­in blómstrað hjá par­inu, en Gummi fór á skeljarnar haustið 2022 í Tuileries-garðinum í Par­ís og bað um hönd hennar.

Gummi og Lína hafa deilt fallegum myndum frá ferðalagi þeirra um Ítalíu á samfélagsmiðlum, þar sem þau njóta ítalskrar menningar, gera vel við sig bæði í mat og drykk, og þræða hátískuverslanir á borð við Louis Vuitton, eins og þeim einum er lagið.

Þá fóru þau út að borða á hátískuveitingastaðnum Gucci Osteria, í Gucci Garden í Flórens, sem þykir einkar glæsilegur. Matseðlarnir á staðnum eru fallega bleikir og réttirnir bornir fram á glæsilega skreyttum diskum með klassíska Gucci merkinu.

Gummi og Lína eru nú komin til Rómar þar sem þau drekka í sig menningu borgarinnar og virða fyrir sér heillandi kennileiti, meðal annars Trevíbrunninn, Hringleikahúsið Colosseum og Pantheon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.