Íslenski boltinn

Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jónatan Ingi Jónsson skoraði eina mark leiksins þegar Valur mætti Fram á Hlíðarenda í dag.
Jónatan Ingi Jónsson skoraði eina mark leiksins þegar Valur mætti Fram á Hlíðarenda í dag. vísir/diego

Valur er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í B-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta. Valur sigraði Fram, 1-0, í dag.

Jónatan Ingi Jónsson skoraði eina mark leiksins á 76. mínútu. Leikið var á Hlíðarenda.

Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Val. Undir lok síðasta tímabils gaf hann í skyn að hann gæti hætt í fótbolta en miðað við leikinn í dag verður að teljast líklegt að hann spili næsta sumar.

Á meðan Valur hefur unnið báða leiki sína í Reykjavíkurmótinu hefur Fram tapað báðum leikjum sínum.

Fram endaði síðasta tímabil illa og vann aðeins einn af síðustu tíu leikjum sínum í Bestu deildinni. Niðurstaðan varð 9. sæti.

Valur lenti hins vegar í 3. sæti og vann sér þátttökurétt í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×