Innlent

Vill að þingið leyfi Hvammsvirkjun með bráða­birgða­lögum

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari.
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari. Vísir/Vilhelm

Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður, telur niðurstöðu Héraðsdóms um Hvammsvirkjun efnislega ranga. Líkt og fjallað hefur verið um var virkjunarleyfi Landsvirkjunar var fellt úr gildi í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni og ríkir mikil óvissa um framhaldið.

Jón Steinar segir það alvarlega ákvörðun fyrir þjóðina í heild sinni ef lögum sé komið þannig fyrir að óheimilt sé að virkja fallvötn til orkumyndunar. Hann leggur til að Alþingi grípi inn í og heimili virkjunina með bráðabirgðalögum. Of langan tíma taki að áfrýja málinu til æðra dómstigs auk þess sem gríðarlegur kostnaður fylgi því ferli.

Nauðsynlegt að höggva á hnútinn

„Ég hef sagt, við skulum bara höggva á hnútinn. Alþingismenn eða ríkisstjórnin ætti að setja bráðabirgðarlög áður en þing kemur saman þann 8. febrúar næstkomandi og heimila þessa virkjun.,“ sagði Jón Steinar á Sprengisandi í morgun.

Með sérlögum, það er alveg hægt?

„Já það er alveg hægt að gera það. Það þarf ekki að setja almenn lög um þetta þó það væri auðvitað betra en það er sjálfsagt ekki hægt við þessar kringumstæður. Það þarf bara að koma þessari virkjun í gang.“

Hann furðar sig á andófi gegn virkjuninni.

„Menn ættu að muna að þar sem Landsvirkjun hefur virkjað, þar er mjög vel gengið frá öllu. Land er ræktað upp og svo framvegis.“

Umræðuna í heild sinni fá finna í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×