Íslenski boltinn

Þróttur fær aðra úr Ár­bænum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ólafur Kristjánsson er á leið inn í sitt annað tímabil sem þjálfari Þróttar Reykjavíkur.
Ólafur Kristjánsson er á leið inn í sitt annað tímabil sem þjálfari Þróttar Reykjavíkur. Vísir/Anton Brink

Þróttur Reykjavík hefur verið duglegt á leikmannamarkaðnum síðan tímabilinu í Bestu deild kvenna í knattspyrnu lauk. Klara Mist Karlsdóttir er gengin í raðir félagsins en hún lék síðast með Fylki.

Klara Mist er fimmti leikmaðurinn sem gengur raðir í Þróttar sem endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð. Nú síðast samdi Mist Funadóttir við uppeldisfélagið en hún hafði fært sig yfir í Árbæinn eftir fá tækifæri í Laugardalnum.

Klara Mist mun ekki spila í appelsínugulu í sumar.Fylkir

Klara Mist verður 22 á árinu og er uppalin í Garðabæ. Hún gekk fyrst í raðir Fylkis á láni 2022 og skipti svo alfarið yfir. Eftir að Árbæingar féllu úr Bestu deildinni í haust sagði hún samningi sínum lausum og hefur nú samið í Laugardalnum til ársins 2027.

Ásamt þeim Klöru Mist og Mist hefur Ólafur Kristjánsson, þjálfari Þróttar, sótt þær Þórdísi Elvu Ágústsdóttur frá Vaxjö í Svíþjóð, Unni Dóru Bergsdóttur frá Selfossi og Birnu Karen Kjartansdóttur frá Íslandsmeisturum Breiðabliks.

Þróttur fær Fram í heimsókn þegar Besta deild kvenna hefst þann 15. apríl næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×