Körfubolti

Ís­lenska körfuboltalandsliðið mun reyna að komast til Katar 2027

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Carmelo Anthony tilkynnti um komu heimsmeistaramótsins til Katar.
Carmelo Anthony tilkynnti um komu heimsmeistaramótsins til Katar. FIBA

NBA goðsögnin Carmelo Anthony tilkynnti hvar næsta heimsmeistaramót í körfubolta fer fram.

Anthony er sendiherra Alþjóða körfuboltasambandsins og sagði heiminum frá því að HM 2027 muni fara fram í Katar.

Hann var í fullum skrúða í eyðimörkinni, með körfubolta í hendi og við hlið úlfalda.

Þetta verður í fyrsta sinn sem HM karla í körfubolta fer fram í Miðausturlöndum.

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti á síðasta heimsmeistaramóti sem var haldið haustið 2023 í Japan, Filippseyjum og Indónesíu,

32 þjóðir munu fá þátttökurétt á mótinu í Katar eftir rúm tvö ár sem fer fram 27. ágúst til 12. september 2027.

Körfubolti er enn ein íþróttin sem sendir heimsmeistaramót sitt til Katar. HM í fótbolta fór þar fram 2022, HM í handbolta var haldið þar 2015 og bæði HM í sundi og HM í frjálsum hafa farið fram í Katar á síðustu árum. 

Miklu fleiri íþróttagreinar hafa einnig haldið heimsmeistaramót sitt í Katar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×