Sport

Á­horf­andi lést eftir að hafa fengið sleggju í sig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sleggjurnar sem eru notaðar í fullorðinsflokki hjá körlum eru sjö kg.
Sleggjurnar sem eru notaðar í fullorðinsflokki hjá körlum eru sjö kg. getty/Darrian Traynor

Sá sorglegi atburður varð á menntaskólamóti í frjálsum íþróttum í Colorado, Bandaríkjunum, að áhorfandi lést eftir að hafa fengið sleggju í sig.

Fulltrúar háskólans í Colorado Springs, þar sem keppnin fór fram, hafa staðfest andlát áhorfandans. Talið er að hann hafi verið faðir keppanda á mótinu.

Ekki hefur verið staðfest hver sleggjukastarinn er. Sleggja hans fór í gegnum nokkur öryggishlið, upp í stúku og í áhorfandann. Hann var úrskurðaður látinn á staðnum.

Samkvæmt sjónvarpsstöðinni KRDO reyndi áhorfandinn að hlífa konu sinni og syni frá því að verða fyrir sleggjunni.

„Við erum í áfalli yfir þessu skelfilega slysi og einbeitum okkur að því að styðja alla hlutaðeigandi,“ sagði Jennifer Sobanet frá háskólanum í Colorado Springs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×