Handbolti

Þórir ætlar að hlusta á hjartað en ekki strax

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Hergeirsson náði stórkostlegum árangri með norska landsliðið og það hafa örugglega mörg félög og landslið áhuga á því að fá hann sem þjálfara hjá sér.
Þórir Hergeirsson náði stórkostlegum árangri með norska landsliðið og það hafa örugglega mörg félög og landslið áhuga á því að fá hann sem þjálfara hjá sér. EPA-EFE/CHRISTIAN BRUNA

Norðmenn eru mjög spenntir fyrir því að komast að því hvað taki við hjá gullþjálfaranum sínum en Selfyssingurinn er alveg rólegur.

Þórir Hergeirsson var meðal áhorfenda á leik Dana og Brasilíumanna í átta liða úrslitum HM karla í handbolta. Norska ríkisútvarpið fékk hann í viðtal og forvitnaðist um hvaða starfstilboð hann hafði fengið.

Þórir hætti í desember með norska kvennalandsliðið eftir fimmtán ára starf sem aðalþjálfari og átta ár þar á undan sem aðstoðarmaður.

Þórir talaði um að taka sér frí frá handboltanum og það hefur ekkert breyst.

„Mér líður bara vel núna. Mér finnst að þetta hafi verið rétt ákvörðun hjá mér og nú hef ég tíma fyrir eitthvað allt annað,“ sagði Þórir við NRK.

Hann segist ekkert vera að velta fyrir sér handboltastörfum eins og staðan er núna. Þórir segist ætla sér freka að einbeita sér að minni störfum og starfa á eigin vegum um sinn.

„Síðan mun ég hlusta á hjartað og skoða hvaða tækifæri bjóðast þá. Ég er ekkert að flýta mér og ætla að taka mér góðan tíma í þetta,“ sagði Þórir við NRK.

Hann hefur heldur ekki fengið símtal frá danska sambandinu um að taka við kvennalandsliði Dana sem er líka þjálfaralaust.

„Nei ég hef áður svarað því hreint út. Það er ekki í boði hjá mér að koma aftur inn í handboltann núna. Næsti þjálfari þeirra verður ekki Hergeirsson,“ sagði Þórir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×