Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að tilkynning hafi borist á fimmta tímanum um að flætt hafi yfir varnargarðana. Vatn hafi í kjölfarið flætt yfir þjóðveg 1 sunnan brúar yfir ánna. Vegurinn sé ófær og Vegagerðin undirbúi viðbrögð.
„Hringvegur (1) er lokaður við Karlsstaðarvita í Berufirði þar sem vegur er farinn í sundur og Hringvegur (1) er ófær við Jökulsá í Lóni þar sem vegurinn er í sundur,“ segir á vef Vegagerðarinnar.
Veistu meira um málið? Áttu myndir af vettvangi? Sendu okkur á ritstjorn@visir.is.