Handbolti

Sú markahæsta með 85 prósent skotnýtingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valskonan Þórey Anna Ásgeirsdóttir er að nýta færin sín frábærlega í vetur.
Valskonan Þórey Anna Ásgeirsdóttir er að nýta færin sín frábærlega í vetur. Vísir/Anton Brink

Valskonan Þórey Anna Ásgeirsdóttir er markahæsti leikmaður Olís deildar kvenna í handbolta fyrir leikina sem fara fram í kvöld.

Þórey Anna hefur skorað 117 mörk í 15 leikjum eða 7,8 mörk að meðaltali í leik. Þetta eru fimm mörkum meira en Haukakona Elín Klara Þorkelsdóttir sem hefur spilað einum leik minna.

Það sem vekur athygli við þetta mikla markaskor Þóreyju Önnu er að hún hefur nýtt 85 prósent skota sinna í vetur sem er frábær nýting. Það hjálpar auðvitað að 58 marka hennar koma úr vítum og hún er með 89 prósent vítanýtingu.

Elín Klara er með 112 mörk í 14 leikjum sem gera 8,0 mörk í leik. Auk þess að vera næstmarkahæst í deildinni þá er Elín sú sem hefur gefið flestar stoðsendingar eða 72. Hún hefur líka skorað 100 mörk utan af velli og sú eina sem státar af því.

Elín hefur skorað fleiri mörk að meðaltali í leik en Þórey Anna. Það stefnir því í baráttu á milli þeirra tveggja um markakóngstitilinn.

Elín Klara er annars að búa mikið til fyrir Haukaliðið því hún er að koma með beinum hætti að 184 mörkum í þessum fjórtán leikjum eða 13,1 marki í leik.

Þær Þórey Anna og Elín Klara eru þær einu sem hafa náð að komast yfir hundrað marka múrinn í vetur en næst því er Eyjakonan Birna Berg Haraldsdóttir sem er með 88 mörk í 15 leikjum.

Hér fyrir neðan má sjá markahæstu leikmenn Olís deildar kvenna fyrir leiki kvöldsins.

  • Markahæstar í Olís deild kvenna 10. febrúar 2025:
  • (Tölur frá HB Statz)
  • 1. Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val 117/58 víti
  • 2. Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukum 112/12
  • 3. Birna Berg Haraldsdóttir, ÍBV 88/25
  • 4. Alfa Brá Hagalín, Fram 77
  • 5. Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR 75/14
  • 6. Ída Margrét Stefánsdóttir, Gróttu 71/13
  • 7. Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi 70/20
  • 8. Embla Steindórsdóttir, Stjörnunni 68/20
  • 9. Elín Rósa Magnúsdóttir, Val 66
  • 10. Eva Björk Davíðsdóttir, Stjörnunni 65/22
  • 10. Thea Imani Sturludóttir, Val 65



Fleiri fréttir

Sjá meira


×