Elliði frábær þegar Gummersbach valtaði yfir Ljónin frá Löwen Smári Jökull Jónsson skrifar 22. febrúar 2025 19:52 Elliði Snær Viðarsson átti stórleik fyrir Gummersbach í dag. VÍSIR/VILHELM Gummersbach vann í kvöld stórsigur á Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Elliði Snær Viðarsson átti stórleik fyrir Gummersbach.
Gummersbach var í 11. sæti úrvalsdeildarinnar fyrir leikinn í dag og var fimm stigum á eftir Rhein-Neckar Löwen sem sat í 7. sæti. Jafnt var á með liðunum í byrjun en Gummersbach skoraði sjö af síðustu níu mörkum fyrri hálfleiks og breytti þá stöðunni úr 10-9 í 17-11. Elliði Snær var lykilmaður í þessum frábæra kafla Gummersbach því hann skoraði fjögur mörk í röð og var að spila afar vel. Í upphafi síðari hálfleiks tóku heimamenn svo algjörlega yfirhöndina. Þeir byrjuðu hálfleikinn á 8-2 kafla og eftir tæplega tíu mínútna leik í síðari hálfleik var staðan orðin 25-13. Gummersbach var þá búið að skora fimmtán mörk gegn fjórum á mínútunum fyrir og eftir leikhléið. Eftir þetta var aldrei spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda. Munurinn varð aldrei minni en átta mörk og Gummersbach fagnaði að lokum 36-25 sigri. Elliði Snær átti frábæran leik fyrir heimaliðið í dag. Hann skoraði átta mörk úr átta skotum og var næst markahæstur hjá liði Gummersbach.
Þýski handboltinn Mest lesið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Íslenski boltinn Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Íslenski boltinn Barcelona búið að landa Gordon Enski boltinn Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti Ederson nálgast Manchester United Enski boltinn Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Handbolti Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Handbolti Fleiri fréttir FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Sjá meira