Lyftu bikarnum fyrir framan þær en hafa síðan ekki unnið Val í þúsund daga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2025 12:01 Valskonur hafa fagnað mörkum sigrum á móti Fram undanfarin ár en endar sigurgangan í kvöld? Vísir/Hulda Margrét 29. maí 2022 urðu Framkonur Íslandsmeistarar í handbolta kvenna eftir sigur í fjórða leik á móti Val. Þær unnu titilinn á heimavelli Vals og lyftu Íslandsbikarnum fyrir framan Valskonur. Nú eru næstum því 33 mánuðir liðnir og Fram hefur enn ekki unnið Valsliðið aftur. Fram og Valur mætast enn á ný í dag í undanúrslitum Powearde bikars kvenna þar sem sæti í bikarúrslitaleiknum er í boði. Leikurinn hefst klukkan 18.00 á Ásvöllum og er fyrri leikur kvöldsins en í hinum, sem byrjar klukkan 20.15, berjast Grótta og Haukar um hitt sætið í bikarúrslitaleiknum. Valskonur eru á toppnum en Framliðið er í öðru sæti. Þetta er því uppgjör tveggja efstu liða Olís deildar kvenna á meðan í hinum leiknum mætast liðin í þriðja sæti og neðsta sæti deildarinnar. Valskonur hafa þegar unnið Fram tvívegis á þessu tímabili, bæði á heima- og útivelli. Þær hafa styrkt takið sitt enn frekar á þessari leiktíð. Fram hefur nú spilað tíu leiki í röð á móti Val án þess að ná að fagna sigri. Liðið náði 20-20 jafntefli í leik liðanna í desember 2022 en Valskonur hafa unnið alla aðra leiki liðanna á síðustu þúsund dögum. Sigurinn á Hlíðarenda í síðasta leik liðanna í janúar var sjöundi sigur Vals í röð á móti Fram. Einn af þeim er síðasti bikarleikur liðanna í febrúar 2022 sem Valur vann með sex mörkum. Liðin mættust síðast á þessu stigi bikarkeppninnar árið 2022 þegar Fram og Valur léku til úrslita um bikarmeistaratititilinn. Valur vann þann leik 25-19. Síðasti undanúrslitaleikur þeirra fór fram árið á undan og þar fögnuðu Framkonur 22-19 sigri. Síðustu tíu keppnisleikir kvennaliða Vals og Fram: Deild, janúar 2025: Valur vann með 3 mörkum [31-28] Deild, október 2024: Valur vann með 4 mörkum [29-25] Deild, janúar 2024: Valur vann með 10 mörkum [30-20] Deild, nóvember 2023: Valur vann með 5 mörkum [26-21] Deild, september 2023: Valur vann með 9 mörkum [29-20] Deild, febrúar 2023: Valur vann með 2 mörkum [24-22] Bikar, febrúar 2023: Valur vann með 6 mörkum [25-19] Deild, desember 2022: Jafntefli [20-20] Deild, október 2022: Valur vann með 5 mörkum [27-22] Meistarakeppnin, september 2022: Valur vann með 4 mörkum [23-19] - Fram fagnaði síðast sigri á móti Val 29. maí 2022 eða fyrir 1005 dögum síðan. Powerade-bikarinn Valur Fram Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira
Fram og Valur mætast enn á ný í dag í undanúrslitum Powearde bikars kvenna þar sem sæti í bikarúrslitaleiknum er í boði. Leikurinn hefst klukkan 18.00 á Ásvöllum og er fyrri leikur kvöldsins en í hinum, sem byrjar klukkan 20.15, berjast Grótta og Haukar um hitt sætið í bikarúrslitaleiknum. Valskonur eru á toppnum en Framliðið er í öðru sæti. Þetta er því uppgjör tveggja efstu liða Olís deildar kvenna á meðan í hinum leiknum mætast liðin í þriðja sæti og neðsta sæti deildarinnar. Valskonur hafa þegar unnið Fram tvívegis á þessu tímabili, bæði á heima- og útivelli. Þær hafa styrkt takið sitt enn frekar á þessari leiktíð. Fram hefur nú spilað tíu leiki í röð á móti Val án þess að ná að fagna sigri. Liðið náði 20-20 jafntefli í leik liðanna í desember 2022 en Valskonur hafa unnið alla aðra leiki liðanna á síðustu þúsund dögum. Sigurinn á Hlíðarenda í síðasta leik liðanna í janúar var sjöundi sigur Vals í röð á móti Fram. Einn af þeim er síðasti bikarleikur liðanna í febrúar 2022 sem Valur vann með sex mörkum. Liðin mættust síðast á þessu stigi bikarkeppninnar árið 2022 þegar Fram og Valur léku til úrslita um bikarmeistaratititilinn. Valur vann þann leik 25-19. Síðasti undanúrslitaleikur þeirra fór fram árið á undan og þar fögnuðu Framkonur 22-19 sigri. Síðustu tíu keppnisleikir kvennaliða Vals og Fram: Deild, janúar 2025: Valur vann með 3 mörkum [31-28] Deild, október 2024: Valur vann með 4 mörkum [29-25] Deild, janúar 2024: Valur vann með 10 mörkum [30-20] Deild, nóvember 2023: Valur vann með 5 mörkum [26-21] Deild, september 2023: Valur vann með 9 mörkum [29-20] Deild, febrúar 2023: Valur vann með 2 mörkum [24-22] Bikar, febrúar 2023: Valur vann með 6 mörkum [25-19] Deild, desember 2022: Jafntefli [20-20] Deild, október 2022: Valur vann með 5 mörkum [27-22] Meistarakeppnin, september 2022: Valur vann með 4 mörkum [23-19] - Fram fagnaði síðast sigri á móti Val 29. maí 2022 eða fyrir 1005 dögum síðan.
Síðustu tíu keppnisleikir kvennaliða Vals og Fram: Deild, janúar 2025: Valur vann með 3 mörkum [31-28] Deild, október 2024: Valur vann með 4 mörkum [29-25] Deild, janúar 2024: Valur vann með 10 mörkum [30-20] Deild, nóvember 2023: Valur vann með 5 mörkum [26-21] Deild, september 2023: Valur vann með 9 mörkum [29-20] Deild, febrúar 2023: Valur vann með 2 mörkum [24-22] Bikar, febrúar 2023: Valur vann með 6 mörkum [25-19] Deild, desember 2022: Jafntefli [20-20] Deild, október 2022: Valur vann með 5 mörkum [27-22] Meistarakeppnin, september 2022: Valur vann með 4 mörkum [23-19] - Fram fagnaði síðast sigri á móti Val 29. maí 2022 eða fyrir 1005 dögum síðan.
Powerade-bikarinn Valur Fram Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Fótbolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira