Lífið samstarf

Allt fyrir ferminguna á einum stað

Boozt
Fermingardagurinn er mikið tilhlökkunarefni.
Fermingardagurinn er mikið tilhlökkunarefni.

Fermingardagurinn stór stund í lífi fermingarbarna og margt sem þarf að huga að.

Hjá Boozt.com finnst nánast allt sem þarf til að fullkomna daginn, fatnað og fylgihluti, heimilsvörur, gjafir og snyrtivörur. Við tókum saman nokkrar hugmyndir sem sýna aðeins brot af því úrvali sem er að finna á síðunni.

Fyrir fermingardömuna

Hvítur er klassískur fermingarlitur og kjólar í hvítum eða ljósum lit njóta ávallt vinsælda á stóra daginn. Jakkaföt eru líka að sækja í sig veðrið hjá stelpunum og alltaf flott að para þau við strigaskó.

Gullfallegur hvítur kjóll frá Mango eða rómantískur kjóll í kremuðum lit með doppum frá The new. Pífurnar í pilsinu gera hann virkilega sparilegan, og talandi um pífur, þessi hvíti pífukjóll frá Zadig & Voltaire Kids er stórglæsilegur fyrir ferminguna og sumarið framundan. Klassískir ballerínuskór frá Mango í kremuðum lit með steinum ganga við þá alla.

Létt og náttúruleg förðun

Á Boozt er að finna fjölbreytt úrval af förðunar- og húðvörum sem henta fermingarkrökkum. Til dæmis er augnskuggi í náttúrulegum tónum frá Urban Decay  og Blush stick kinnaliturinn frá IsaDora , sem hægt er að nota á varir og augu líka, tilvaldir fyrir létta og náttúrulega fermingarförðun. Til að skerpa aðeins á förðuninni er maskari frá Maybelline sem lengir augnhárinn skemmtilegur. 

Fyrir fermingarherrana

Strákarnir geta valið úr flottum fermingafötum á Boozt. Hvít skyrta við dökkar buxur er afslappað og sparilegt lúkk og flottir strigaskór eru praktískir til að nota áfram í sumar. Strigaskór eru líka mjög töff við jakkaföt. Þá eru stákarnir líka duglegir að nota aukahluti eins og flott belti, bindi og skart. 

Ljós og sumarlega jakkaföt frá Jack & Jones smellpassa fyrir þetta tilefni og nýtast líka vel í sumarveislurnar. Dökk jakkaföt finnst sumum sparilegri og að sjálfssögðu eru þau til á Boozt. Hvít Ralph Lauren skyrta við dökkbláar buxur frá Mango og belti frá Boss munu slá í gegn. Adidas strigaskór ganga síðan fullkomlega við allt.

Foreldrarnir þurfa líka sitt fermingardress

Fermingardagur barnanna er ekki síður stór dagur í lífi foreldranna. Þau þurfa að dressa sig upp og þá er þægilegt að geta græjað sig og fermingarbarnið og jafnvel systkinin líka, allt í sömu pöntun. 

Fyrir fermingarmömmuna

Fágaður ermalaus kjóll frá Lauren Ralph Lauren við netta skó frá Billi Bi er stórglæsilegt fermingardress fyrir mömmuna. Fyrir litríkar mömmur er þessi fallegi bleiki kjóll frá Stine Goya með afslöppuðu "wrap sniði" mjög hentugur. 

Förðunin má vera létt á fermingardaginn en fallegur varalitur stendur alltaf fyrir sínu. Þessi litur frá Yves Saint Laurent færi til dæmis vel við hvaða kjól sem er og svo má toppa útlitið með maskara frá Lancome sem bæði lengir og þéttir augnhárin. Til að halda andlitinu gegnum allan daginn kemur setting spreyið frá Lumene til bjargar. Úrval af flottum förðunarvörum, húð- og hárvörum, burstum og fleiru er að finna hér.

Úrval fyrir fermingarfeður

Fermingarpabbarnir verða ekki í neinum vandræðum með að finna hið fullkomna sparidress á Boozt. Þeir yrðu til dæmis glæsilegir í ljósum jakkafötum frá Tiger of Sweden, og vel sniðinni skyrtu frá Boss með flott bindi frá Amanda Christensen. Pabbarnir get vel parað strigaskó við jakkafötin eins og strákarnir, eða smellt sér á gljábónaða spariskó frá Vagabond

Yfir hundrað gjafahugmyndir 

Það getur verið áskorun að finna sniðuga fermingargjöf en á Boozt er búið að taka saman gjafahugmyndir

Orða- og sagnfræðibækur hafa verið klassískar fermingargjafir gegnum tíðina en til að miða meira við áhugasvið unglingsins gæti til dæmis gæti verið sniðugt að gefa The Ultimate Sneaker Book. Fallegur púði í unglingaherbergið frá uppáhalds merkinu, Ralph Lauren Home er líka flott gjöf og tréfugl frá Kay Bojesen setur svip á herbergið. Fermingargjafir eru líka oft hugsaðar sem framtíðareign og þá er til dæmis Stoff Nagel kertastjakinn sniðug gjöf sem hægt er að bæta við og stafla. 

Snyrti- og hárvörusett geta verið fjárfesting fyrir unglinga og því frábært að fá slíkt í fermingargjöf. GHD hárblástursburstinn og sléttujárn frá Remington koma sér vel fyrir síðhærða og fyrir þau sem vilja halda stuttu og vel snyrtu hári, eða skeggi, er Multi trimmerinn frá BaByliss frábær gjöf.

Gjafabréf opna á alla búðina

Gjafabréf eru frábær ef við erum í vandræðum með að velja eitthvað ákveðið handa fermingarbarninu.  Gjafabréf gefur unglingnum sjálfum frjálsar hendur á Boozt. Hægt er að velja á milli þess að fá fallegt gjafakort í pappírsformi eða sem stafrænt gjafakort sem er þá  sent samstundis með tölvupósti eða SMS.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.