Fulham nær Evrópu eftir sigur á Tottenham Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2025 21:20 Rodrigo Muniz fagnar marki Ryan Sessegnon með því að hoppa yfir liðsfélaga sinn en þeir skoruðu mörk Fulham í dag. AFP/Ben STANSALL Fulham ætlar að vera með í baráttunni um Evrópusætin og sannaði það með 2-0 sigri á Tottenham í Lundúnaslag á Craven Cottage í ensku úrvalsdeildinni í dag. Rodrigo Muniz skoraði fyrra markiið tólf mínútum fyrir leikslok með frábærri afgreiðslu eftir sendingu Andreas Pereira. Hitt markið skoraði Ryan Sessegnon á 88. mínútu en hann var þá nýkominn inn á sem varamaður. Fulham hefur verið að klára leikina sterkt og þetta voru fjórtánda og fimmtánda mark liðsins á síðustu fimmtán mínútum leikjanna á leiktíðinni. Aðeins Bournemouth (17) hefur skorað fleiri slík mörk. Fulham komst upp í áttunda sæti með sigrinum og er nú aðeins tveimur stigum á eftir Newcastle og Brighton sem eru í sætunum fyrir ofan. Slakt gengi Tottenham í deildinni heldur aftur á móti áfram en liðið hefur ekki fagnað sigri í síðustu þremur deildarleikjumm. Taðið þýðir að liðið er í þrettánda sæti og gæti misst Manchester United upp fyrir sig seinna í kvöld. Tottenham og United eru tvö af fjögur liðum með 34 stig en hin eru Everton og West Ham. Enski boltinn