Frekar til í að borga himinháa sekt en að kaupa Sancho Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. mars 2025 07:01 Hefur ekki sýnt mikið í blárri treyju Chelsea. Visionhaus/Getty Images Þegar Chelsea fékk enska vængmanninn Jadon Sancho lánaðan frá Manchester United síðasta sumar var það undir þeim formerkjum að Lundúnaliðið myndi kaupa leikmanninn að loknu yfirstandandi tímabili. Chelsea hefur nú skipt um skoðun og er tilbúið að borga sekt frekar en að festa kaup á leikmanninum.
Hinn 24 ára gamli Sancho gerði lítið sem ekkert í treyju Manchester United ef frá er talið mark í 2-1 sigri á Liverpool þann 22. ágúst árið 2022. Leikmaðurinn lenti upp á kant við Erik ten Hag, þáverandi þjálfara, og var lánaður til síns fyrrum félags Borussia Dortmund. Dortmund taldi frammistöðu Sancho ekki nægilega góða til að kaupa leikmanninn á nýjan leik. Hann sneri aftur til Man United og var – þó svo að samband hans og Ten Hag hafi skánað – lánaður til Chelsea síðasta sumar. Í samningi félaganna var ákvæði um að Chelsea þyrfti að kaupa leikmanninn að lánssamningnum loknum. Nú greinir The Independent frá því að Chelsea hafi engan áhuga á að kaupa leikmanninn og sé tilbúið að greiða sekt til að komast hjá því. Ekki væri um neina smásekt að ræða ef marka má heimildir The Independent. Þar segir að Chelsea þyrfti að borga fleiri milljónir punda til að komast hjá því að kaupa Sancho. Samningur félaganna var á þá leið að ef Chelsea myndi lenda ofar en 14. sæti þá þyrfti það að kaupa Sancho fyrir 20-25 milljónir punda. Nú stefnir í að félagið muni borga stóran hluta þeirrar upphæðar til þess eins að leikmaðurinn yrði áfram í Manchester-borg. Sancho hefur skorað tvö mörk og gefið sex stoðsendingar í 29 leikjum í öllum keppnum á leiktíðinni.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira