Lovísa Ósk nýr listdansstjóri Íslenska dansflokksins Lovísa Arnardóttir skrifar 27. mars 2025 13:51 Lovísa Ósk Gunnarsdóttir með Loga Einarssyni ráðherra. Stjórnarráðið Lovísa Ósk Gunnarsdóttur hefur verið skipuð í embætti listdansstjóra Íslenska dansflokksins. Logi Einarsson, M-menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur skipað hana í embættið frá og með 1. ágúst næstkomandi. Í tilkynningu stjórnarráðsins kemur fram að alls hafi borist átta umsóknir um starfið.
Þar kemur einnig fram að Lovísa Ósk stundaði undirbúningsnám í dansi við Balletakademian í Stokkhólmi í Svíþjóð og lauk atvinnudansaranámi þaðan árið 2002. Lovísa lauk meistaranámi í sviðslistum (MFA) við Listaháskóla Íslands árið 2020 og árið 2022 lauk hún MPM gráðu í verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík. Þá segir að Lovísa hafi um árabil starfað sem dansari í Íslenska dansflokknum en hafi auk þess verið sjálfstætt starfandi danshöfundur, dansari og listrænn stjórnandi og hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir dansverk sín og túlkun. Erna Ómarsdóttir sinnti embættinu á undan Lovísu Ósk. Í auglýsingu stjórnarráðsins í desember kom fram að hlutverk Íslenska dansflokksins sé að sýna dansverk, vera vettvangur fyrir framþróun og nýsköpun danslistar á Íslandi og glæða áhuga landsmanna á danslist. Þá kom einnig fram að listdansstjóri er forstöðumaður Íslenska dansflokksins. Listdansstjóri veitir dansflokknum listræna forystu, stýrir starfsemi hans og rekstri og mótar listræna stefnu hans. Hann ræður aðra starfsmenn flokksins og er í fyrirsvari fyrir hann.
Dans Menning Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Leikhús Vistaskipti Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Terry Reid látinn Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira