Innlent

Lýsa eftir Svövu Lydiu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Síðast er vitað  af ferðum Svövu á Torreveja svæðinu á Spáni á föstudaginn.
Síðast er vitað af ferðum Svövu á Torreveja svæðinu á Spáni á föstudaginn. Lögreglan á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Svövu Lydiu Sigmundsdóttur. Síðast er vitað af ferðum hennar á Torrevieja svæðinu á Spáni föstudaginn 4. apríl. 

Svava er 33 ára, mjög grönn, með svart sítt hár með ljósan topp, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 

Eru þeir sem kunna að hafa upplýsingar um ferðir hennar eða dvalarstað eftir 4. apríl, beðnir að setja sig í samband við lögregluna á Vesturlandi í gegnum netfangið vesturland@logreglan.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×