Anna Þóra Björnsdóttir & Sólveig Einarsdóttir voru í góðum fíling á opnun sýningarinnar Þraut. Aðsend
Sýningin Þraut // Leiðin frá gæru til vöru var opnuð með pompi og prakt í síðustu viku í verslun Felds Verkstæðis að Snorrabraut 56, sem hluti af Hönnunarmars. Tískuunnendur flykktust að en sýningin verður opin almenningi til og með 3. ágúst næstkomandi.
„Við vildum opna augu fólks fyrir þeim ferlum sem oft fara fram hjá neytendum og sýna hversu mikil natni og hugvit liggur að baki vöru sem margir þekkja en fáir skilja til fulls.
Í sýningunni er sjónum beint að framleiðsluferli íslenska lambaskinnsins, frá gæru til vandaðrar vöru. Markmiðið er að varpa ljósi á það handverk, þá þekkingu og sjálfbæru nálgun sem liggur að baki hráefnisins og þessum menningararfi.
Sýningin er bæði upplýsandi og lifandi, þar sem gestir geta snert, skoðað og upplifað efnið. Hún hentar jafnt börnum og fullorðnum og er áhugaverð fyrir alla sem hafa áhuga á íslensku hráefni, sjálfbærni, hönnun og menningu,“ segir í fréttatilkynningu.
Hér má sjá myndir frá opnunarteitinu:
Anna Þóra Björnsdóttir & Sólveig Einarsdóttir voru í góðum fíling og rokkuðu að sjálfsögðu feldinn.AðsendNöfnurnar Birna Sísí og Valgerður Birna.AðsendKristín Birgisdóttir & Helga Sigurðardóttir brostu breitt.AðsendSýningin þraut stendur fram í ágúst.AðsendSýningin hentar öllum aldurshópum.AðsendStuð og leikur!AðsendFerlið frá gæru til vöru er sett fram á sýningunni Þraut.AðsendElín Dagný og Jana heilsukokkur létu sig ekki vanta.AðsendSólveig Einarsdóttir, Silja Geirsdóttir og Aldís Arthursdóttir tóku vel á móti gestum.AðsendÞað má finna alls konar hluti á sýningunni.AðsendJana Víglunds, Sólveig Einarsdóttir, Elínborg Kolbeinsdóttir og Marta Heiðarsdóttir.AðsendGlæsilegar mæðgur! Pattra Sriyanonge mætti með dóttur sinni. AðsendHeiðar Sigurðsson feldskeri.AðsendValgerður Birna og Marta Hreiðarsdóttir flottar.AðsendAnna Björns og dóttir Pöttru í knúsi.AðsendTómas og Silja.AðsendVignir Heiðarsson og Birta Dís Kaldal.AðsendBarn að leik.Aðsend