Elti ástina til Íslands Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. apríl 2025 07:00 Tónlistarmaðurinn snny var að senda frá sér plötuna caféradio. Kaja Sigvalda „Í hvert skipti sem ég skapa þá reyni ég að byggja brú á milli ólíkra hluta, ólíkra menninga og hugmynda, því í kjarnann er ég þannig listamaður,“ segir tónlistarmaðurinn Sonny Bouraima, sem notast við listamannsnafnið snny og var að senda frá sér plötuna caféradio.
Margt svipað með Reykjavík og New York Snny er fæddur á Fílabeinsströndinni í Vestur-Afríku og alinn upp í Boston. Hann kynntist eiginkonu sinni fyrirsætunni Sigrúnu Evu Jónsdóttur-Bouraima í New York og ástin leiddi hann svo til Íslands, þar sem hann unir sér vel. „Það hefur verið gefandi bæði að búa og skapa í Reykjavík. Mér finnst skapandi samfélagið hér þrífast vel og ég er með stúdíó í Hafnar.hausi sem er skapandi rými í Hafnarhúsinu þannig mér finnst ég ná að vera svolítið í hringiðunni á þessu öllu. Þó að þetta sé frábrugðið New York að mörgu leyti finnst mér orkan í listasenunni í raun mjög svipuð.“ View this post on Instagram A post shared by Sigrún Eva Jónsdóttir (@sigruneva) Sonny og Sigrún eiga saman dóttur en hún fæddist á Íslandi árið 2019 rétt áður en Covid faraldurinn hófst. „Við fluttum svo til Íslands í Covid. Dóttir okkar fæddist hér í október 2019 og við ætluðum svo að flytja aftur til New York í febrúar 2020. Mánuði seinna skall Covid á þannig við komum aftur hingað og settumst að í Reykjavík.“ Heillaðist að japönskum jazz kaffihúsum Við gerð EP plötunnar caféradio var gleðin í fyrirrúmi. „Öll þessi lög á plötunni voru samin í stúdíóinu þar sem við vorum bara að skemmta okkur vel og vorum ekki að hugsa um neitt annað en njóta þess að skapa fyrir sköpunina. Ég fór í gegnum ákveðna enduruppgötvun á mínu sköpunarferli. Í ferlinu heillaðist ég mjög að svokölluðum japönskum jazz kissa, sem eru kaffihús með alvöru gæða hljóðkerfi og gríðarlegu plötusafni. Ég togaðist í átt að þessu og sá fyrir mér hvers lags tónlist ég myndi vilja heyra á slíku kaffihúsi.“ Hér má hlusta á plötuna á streymisveitunni Spotify: Hann sótti sömuleiðis mikinn innblástur í ekta Tókýó stíl, þar á meðal ljósmyndir Kyoichi Tsuzuki af pínulitlum og fallegum íbúðum í stórborginni. „Ljósmyndirnar hans grípa eitthvað sem ég hef alltaf heillast að. Hið ljóðræna ójafnvægi, sálin í ófullkomnuninni og hvernig rými getur sagt sögu án þess að segja orð. Ég ákvað að prófa að senda á Kyoichi en bjóst ekki við því að fá einhver svör. En ótrúlegt en satt tók hann ótrúlega vel í hugmyndina og við unnum saman plötuumslagið fyrir caféradio. Það endurspeglar nándina og hlýjuna sem ég vil að einkenni tónlistina mína.“ Plötuumslagið umrædda.Aðsend Upplifun í einangrun Platan hefur verið í vinnslu hjá Snny í rúmt ár. „Ég var ekki með ákveðinn skilafrest á þessu, mig langaði bara að leyfa tónlistinni að þróast náttúrulega og njóta alls ferlisins.“ Hér má sjá tónlistarmyndbandið við lagið Vanguard af plötunni: Klippa: snny - Vanguard Hugmyndin að tónlistarmyndbandinu kom í kjölfar þess að danska hljóðfyrirtækið AIAIAI valdi Snny í hóp þeirra listamanna sem þau styrkja. „Þau sendu mér þráðlausa mónitora til að búa til eitthvað skemmtilegt efni í kringum. Hugmyndin var að skapa einstaklingsbundna hlustunar-upplifun sem fer fram í einangrun, úti í náttúrunni með engar truflanir. Bara hljóð, rými og snjór.“
Tónlist Ástin og lífið Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Lífið Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Lífið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Fleiri fréttir Úlfarnir rifu næstum þakið af Austurbæ Þjóðþekktir tónlistarmenn koma fram í heimahúsum Flóni og Alaska ekki lengur „bara vinir“ Námið ekki eins krefjandi og á Tene Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Forrest Gump rokksins allur Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Hlustun á Bó snaraukist Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum „GusGus gera sexý lög og Birnir er einfaldlega sexý beast“ „Við teljum að þetta verði sögulegir tónleikar“ Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Laufey Lín sló í gegn á Coachella Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Sjá meira