Birti myndir af fólki, kalli það illum nöfnum og saki um einelti á meðan Árni Sæberg skrifar 2. maí 2025 15:08 Brynjar Karl ræðir við lærisveina sína í Aþenu. Tugir fyrrverandi lærisveina hans hafa kvartað undan honum til samskiptaráðgjafa ÍSÍ. Vísir/Diego Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands lýsir yfir stuðningi og samstöðu með starfsfólki samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs í kjölfar þess að frambjóðandi til forseta ÍSÍ bar samskiptaráðgjafann þungum sökum í vikunni. Hann er sagður ráðast harkalega með ofbeldi og hótunum að fagmennsku, heiðri og mannorði einstaklings sem sinnir hlutverki samskiptaráðgjafa.
Þetta segir í yfirlýsingu framkvæmdastjórnarinnar sem send var fjölmiðlum í dag. Í áliti sem embætti samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs vann nýverið varðandi þjálfunarhætti Brynjars Karls Sigurðssonar, þjálfara Aþenu og frambjóðandi til forseta ÍSÍ, segir að það sé alvarlegt mál að Brynjar Karl tali um að „gera tilraunir“ á börnum með þjálfunaraðferðum sínum og áhyggjuefni að hann telji sig í því sambandi geta treyst á eigið innsæi, án þess að styðjast við viðurkennd fræði eða gagnreynda aðferðafræði. Álitið var unnið eftir að fyrrverandi iðkendur Brynjars Karls hjá Aþenu og foreldrar þeirra leituðu til samskiptaráðgjafa og lýstu framferði hans í starfi. Framferði sem samkvæmt skýrslunni var talið fela í sér ógnandi framkomu og niðurlægjandi orðræðu. Brást ókvæða við Óhætt er að segja að Brynjar Karl hafi brugðist ókvæða við áliti samskiptaráðgjafans. „Ég vona bara að þessir aðilar fari alla leið og reyni að klára þetta verkefni sitt, að bola mér út, svo að þetta geti farið á eitthvað dómstig. Það er eiginlega það sem ég óska mér. Að ég fái einhvern tímann alvöru rannsókn,“ sagði hann í samtali við Vísi á dögunum. „Þetta er glæpsamlegt. Hreinn og klár glæpur. Það hefur aldrei verið brotið á mér svona,“ sagði Brynjar Karl og lýsti áliti samskiptaráðgjafa sem algjörri hrákasmíð, sem augljóslega væri til komin vegna rimmu hans við Íþrótta- og ólympíusamband Íslands – sambandið sem hann sækist nú eftir að leiða. Ekki rétta leiðin að ráðast að starfsfólki samskiptaráðgjafa Í yfirlýsingu ÍSÍ segir að starf samskiptaráðgjafa hafi verið sett á laggirnar með lagasetningu eftir ákall um að einstaklingar innan íþrótta- og æskulýðsstarfs sem upplifa einelti, áreitni eða ofbeldi gætu fengið áheyrn, aðstoð og stuðning frá óháðum aðila og leitað réttar síns vegna atvika og misgerða án þess að þurfa að óttast afleiðingarnar. Frá árinu 2020 hafi samskiptaráðgjafi fengið yfir fjögur hundruð tilkynningar og meirihluti þeirra tilheyri mála íþróttahreyfingunni. Hlutverk samskiptaráðgjafa sé meðal annars að stuðla að öryggi þeirra sem taka þátt í starfsemi íþróttafélaga og að leiðbeina þeim einstaklingum sem til hans leita og afla upplýsinga um mál þeirra. Einstaklingur sem sakaður er um áreitni eða ofbeldi fái þannig tækifæri til að koma sinni hlið málsins á framfæri. Sé viðkomandi ósáttur við vinnulag samskiptaráðgjafa sé rétt að beina slíkum erindum til mennta- og barnamálaráðuneytisins sem starfið heyrir undir. „Að ráðast opinberlega gegn starfsfólki embættisins er ekki rétta leiðin.“ Tugir iðkenda hafi leitað til ráðgjafans Frambjóðandi til forseta ÍSÍ, Brynjar Karl Sigurðsson, hafi stigið fram og lýst því yfir að samskiptaráðgjafi hefði rýnt í störf hans og skilað um þau skýrslu. Það hafi verið gert eftir að tugir fyrrverandi iðkenda Brynjars Karls og foreldrar þeirra höfðu leitað til samskiptaráðgjafa vegna samskipta við hann. Í fjölmiðlum hafi komið fram að Brynjar Karl sé ósáttur við niðurstöðu skýrslunnar og hafi í stað þess að fara með málið í hefðbundinn farveg og beina athugasemdum sínum til mennta- og barnamálaráðuneytis, brugðist við með því að ráðast harkalega með uppnefnum og hótunum að fagmennsku, heiðri og mannorði einstaklings sem sinnir hlutverki samskiptaráðgjafa. „Brynjar Karl hefur einnig um langt skeið opinberlega nafngreint fólk sem ýmist starfar í íþróttahreyfingunni eða í samstarfi við hana, birt af þeim ljósmyndir og myndskeið, kallað þau illum nöfnum og vegið að heilindum þeirra og mannorði á sama tíma og hann sakar þau um að leggja sig í einelti. Þetta fólk á það flest sameiginlegt að hafa á einhverjum tímapunkti verið ósammála honum eða gagnrýnt aðferðir hans eða slæma framkomu á einhvern hátt. Framkvæmdastjórn ÍSÍ harmar að viðkomandi einstaklingar þurfi að sitja undir slíku áreiti.“ Innan íþróttahreyfingarinnar sé mikil áhersla lögð á háttvísi, heilindi og velferð iðkenda, starfsfólks og sjálfboðaliða. Framkoma sem þessi fari þvert gegn gildum íþróttahreyfingarinnar og eigi ekki heima innan hennar.
ÍSÍ Körfubolti Aþena Mest lesið Fluga hjálpaði kúlunni ofan í holuna Golf Fyrsti homminn í landsliði neyðist til að hætta Fótbolti Langri bið Sveindísar lauk með sætum sigri á meisturunum Fótbolti Fengu milljóna sekt eftir ólætin á Íslandi Fótbolti Grét í viku þegar Arsenal vildi hann ekki en sama félag borgar nú marga milljarða Enski boltinn Meiddist alvarlega hjá sjúkraþjálfaranum Fótbolti Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Körfubolti „Erum við virkilega í fituprósentum 2025?“ Íslenski boltinn Bjarki Gunnlaugs spáir því að Liverpool landi Isak eftir Newcastle leikinn Enski boltinn „Lukkudýrið“ í mál við félagið Körfubolti Fleiri fréttir „Lukkudýrið“ í mál við félagið ÍR-ingar sækja Grikkja á Álftanesið: „Sannkallaðar gleðifréttir“ Brotnaði saman þegar hann bar liðsfélögum tíðindin Faðir Boston Celtics stjörnu handtekinn fyrir morðtilraun Yngri Agravanis-bróðirinn í Stjörnuna Beittu sér fyrir keppnisbanni Ísraela: „Ekki fengið nógu marga með okkur í lið“ Yfirlýsing KKÍ: Hætta ekki við leikinn við Ísrael Almar var kominn alla leið til Bandaríkjanna Haukur Helgi meiddur og Almar kallaður inn í hópinn Nánast allar treyjur uppseldar fyrir EM Erfitt að horfa á félagana detta út Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“ Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna Svona er hópur Íslands sem fer á EM Keflavík semur við Breta: „Þekktur fyrir öfluga nærveru í teignum“ Manchester heimsækir Síkið og Tindastóll fer til fjögurra landa Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM Tryggvi lét mest til sín taka í tapi gegn Portúgal Khalil Shabazz til Grindavíkur Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa Keflavík fær bandarískan framherja Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket Stelpurnar töpuðu þrátt fyrir frábæra byrjun Sjá meira