Vantraust á framkvæmdastjóra Félagsbústaða talið alvarlegt Kjartan Kjartansson skrifar 8. maí 2025 13:19 Á ýmsu hefur gengið á skrifstofu Félagsbústaða undanfarin misseri. Starfsfólk lýsti yfir vantrausti á framkvæmdastjóra eftir að hann rak starfsmenn fyrir allra augum í febrúar. Vísir/Vilhelm Sérfræðingar í vinnuvernd telja vantraust starfsfólks Félagsbústaða til framkvæmdastjóra stofnunarinnar alvarlegt í áhættumati sem þeir unnu á vinnustaðnum. Flestir starfsmenn sögðust hafa orðið vitni að einelti eða ofbeldi.
Ófremdarástand hefur ríkt hjá Félagsbústöðum undanfarna mánuði vegna óánægju starfsfólks með Sigrúnu Árnadóttur, framkvæmdastjóra stofnunarinnar til sex ára. Allir starfsmenn Félagsbústaða fyrir utan þrjá stjórnendur skrifuðu undir yfirlýsingu um vantraust á hendur Sigrúnu eftir uppákomu þar sem hún rak starfsmann fyrir allra augum á starfsmannafundi í lok febrúar. Í yfirlýsingunni sakaði starfsfólkið Sigrúnu um ógnarstjórn og virðingarleysi. Óskaði starfsfólkið eftir því að fagfólk yrði fengið til þess að skoða starfsemina og stjórnarhætti Sigrúnar og að hún yrði sett í tímabundið leyfi á meðan. Stjórn Félagsbústaða sendi Sigrúnu ekki í leyfi en fékk ráðgjafarfyrirtækið Auðnast til þess að vinna áhættumat starfa hjá stofnuninni. Hún vildi ekki aðhafast frekar fyrr en niðurstöður þeirrar greiningar lægju fyrir. Ekki ætlað að taka sérstaklega á vantraustinu Niðurstöður áhættumatsins voru kynntar starfsfólki á þriðjudag. Þar kom meðal annars fram að ráðgjafarnir hefðu fundið sterkar vísbendingar um að ekki væri hlúð að sálfélagslegu öryggi starfsfólks. Vantraust þess til framkvæmdastjórans hefði jafnframt verið greint alvarlegt og að það hefði meðal annars áhrif á traust til annarra stjórnenda stofnunarinnar. Stjórnun var á meðal fjögurra þátta á vinnustaðnum sem ráðgjafarnir töldu að fælu í sér óviðunandi áhættu sem bregðast þyrfti við án tafar. Af þeim tíu þáttum sem voru skoðaðir, eins og starfsánægja, álag og ofbeldi og áreitni, var áhætta talin óviðunandi í öllum nema einum. Áhættumatið virðist hafa verið almennt og ekki snúist beint um vantraust starfsfólksins á framkvæmdastjóranum. Athugasemdirnar um það koma þannig fram í sérstökum kafla um „sértæka áhættuþætti“. Í kafla um markmið áhættumatsins segir að því hafi ekki verið ætlað að greina sértækan vanda. Í samantekt fyrirtækisins kemur fram að ef vísbendingar vakna um sértækan vanda á vinnustaðnum í viðtölum við starfsfólk sé því komið í „viðeigandi ferli í samræmi við skilgreiningu á trúnaði við starfsfólk“. Samskiptavandi sem eigi rætur að rekja til vinnustaðarmenningar Vantraustið í garð stjórnenda er sagt hluti af ástæðu þess að starfsfólk hafi sýnt mótstöðu gagnvart stefnumótun og innleiðingu á breytingum. Ráðgjafarnir sögðu einnig vísbendingar um að í samtali og samskiptum stjórnenda og starfsfólks væru hindranir sem kæmu í veg fyrir sameiginlegan skilning í tengslum við innleiðingu breytinga. Þann undirliggjandi samskiptavanda töldu sérfræðingarnir eiga rætur sínar að rekja í menningu vinnustaðarins sem ekki hafi tekist að uppræta. Ekki er fjallað nánar um eðli þeirrar menningar í niðurstöðunum sem starfsfólk fékk í hendur. Sigrún Árnadóttir, framkvæmdastjóri Félagsbústaða.Aðsend Fram kemur í áhættumatinu að ekki hafi verið hægt að birta allar niðurstöður kafla um stjórnun Félagsbústaða. Vísað er til persónurekjanleika í ljósi fjölda svarenda. Allir tuttugu og fimm starfsmenn Félagsbústaða ræddu við ráðgjafana í viðtölum sem voru tekin í byrjun apríl. Rétt rúmur helmingur starfsfólksins taldi starfsandann á vinnustaðnum mjög slæman eða slæman en 68 prósent að andinn meðal nánasta samstarfsfólks síns mjög góðan eða góðan. Flestir höfðu orðið vitni að einelti eða ofbeldi Tveir starfsmenn (8 prósent) sögðu ráðgjöfunum að þeir hefðu orðið fyrir einelti, ofbeldi og kynbundinni áreitni hjá Félagsbústöðum síðasta hálfa árið. Sextíu prósent starfsmannanna sögðust hafa orðið vitni að því, ýmist einelti eða ofbeldi. Af þeim sem sögðust hafa orðið vitni að þeirri hegðun sögðust 77 prósent hafa gert það síðasta hálfa árið. Almennt töldu þeir starfsmenn sem ræddu um upplifun sína að úrvinnsla slíkra mála hefði verið slæm, þótt dæmi væri um jákvæða upplifun þeirra. Tveir af hverjum fimm starfsmönnum sögðust upplifa starfsöryggi hjá Félagsbústöðum en þeir sem sögðust ekki upplifa öryggi í starfi nefndu breytingaferli og ótta við uppsagnir sem ástæðu með tilliti til uppsagnar starfsmanns sem varð kveikjan að vantraustsyfirlýsingu starfsfólksins. Biðja ráðgjafana um forgangsröðun á inngripum Ellý Alda Þorsteinsdóttir, stjórnarformaður Félagsbústaða, segir stjórnina rýna í niðurstöður Auðnast en leggur áherslu á að lokaskjalið liggi enn ekki fyrir þar allir hlutaðeigendur hafi til 16. maí að koma með ábendingar. Stjórnin hafi þó þegar ákveðið að óska eftir að Auðnast leggi til forgangsröðun á þeim tillögum að inngripum sem koma fram í niðurstöðum áhættumatsins. Ellý Alda Þorsteinsdóttir, formaður stjórnar Félagsbústaða.Velferðarráðuneytið Auðnast lagði þó ekki fram neinar tillögur varðandi vantraust starfsfólks til framkvæmdastjóra sem rakið er í kaflanum um sértæka áhættuþætti. Spurð út í vantraustið sem hafi komið fram í greiningu ráðgjafarfyrirtækisins og stöðu framkvæmdastjórans segir Ellý „allt til skoðunar“. Sakaði starfsfólkið um einelti gegn sér þegar niðurstöðurnar voru kynntar Sigrún var viðstödd kynninguna á þriðjudag. Hún er þar sögð hafa sakað starfsfólkið um einelti gegn sér, meðal annars vegna þess að það vildi ekki hafa hana með í árshátíðarferð sem var farin til Króatíu í byrjun mánaðar. Félagsbústaðir eru sjálfseignastofnun sem er að öllu leyti í eigu Reykjavíkurborgar. Hún heldur utan um þúsundir félagslegra íbúða sem félagsþjónusta borgarinnar úthlutar og sýslar þannig með margmilljarða króna eignir. Félagið tilheyrir svonefndum B-hluta samstæðu Reykjavíkurborgar og starfsmenn þess njóta ekki sama starfsöryggis og borgarstarfsmenn A-hluta. Stofnunin hefur sætt gagnrýni í vikunni eftir að kona með fíknivanda var borin út úr íbúð við Bríetartún. Konan sagðist hafa neitað að greiða leigu um nokkurt skeið vegna annarrar konu sem býr í húsinu sem er sögð hafa haldið íbúum þar í heljargreipum. Sigrún framkvæmdastjóri sagði það lokaúrræði að bera fólk út en það væri þrautalending ef það borgaði ekki leigu í lengri tíma.
Húsnæðismál Reykjavík Félagsmál Stjórnsýsla Mannauðsmál Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira