Innlent

Nýja göngu­brúin yfir Sæ­braut fer upp í næstu viku

Atli Ísleifsson skrifar
Þegar brúin verður komin á sinn stað heldur vinna við stigahúsin áfram.
Þegar brúin verður komin á sinn stað heldur vinna við stigahúsin áfram. Vegagerðin

Áformað er að hífa nýja göngu- og hjólabrú upp í heilu lagi á Sæbraut í Reykjavík í byrjun næstu viku ef veðuraðstæður leyfa. Ætlunin er koma brúnni fyrir á stigahúsum sem reist hafa verið við Dugguvog og Snekkjuvog.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Þar segir ennfremur að samtímis verði settar upp hæðarslár sitt hvoru megin við nýju brúna.

„Framkvæmdirnar fara fram að næturlagi til að hafa sem minnst áhrif á umferð. Þá nótt sem þessar aðgerðir standa yfir verður Sæbraut lokuð á þessum kafla. Búast má við víðtækari lokunum sem kynntar verða þegar nær dregur.

Bætir umferðaröryggi verulega

Nýja göngubrúin er um miðja vegu milli gatnamóta Sæbrautar við Súðavog annars vegar og Kleppsmýrarvegs hins vegar. Með henni verður til ný gönguleið milli Dugguvogs við Tranavog og Snekkjuvogs.

Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.

Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.Vegagerðin

Vegagerðin beinir þeim tilmælum til verktaka og flutningafyrirtækja að kynna þessar hæðatakmarkanir fyrir sínu starfsfólki. Ástæða er til þess að hvetja ökumenn stærri bíla til að setja niður palla á vörubílum, pakka saman bílkrönum og svo framvegis, svo ekki komi til óhappa eða slysa vegna hæðatakmarkananna.

Unnið við stigahús í framhaldinu

Þegar brúin verður komin á sinn stað heldur vinna við stigahúsin áfram. Gengið verður frá tengingum milli brúar og stigahúsa, sett upp lýsing og myndavélakerfi, gengið frá jarðvegi við stigahúsin og göngu- og hjólastígar malbikaðir. Lyftur verða síðan settar upp við báða brúarenda,“ segir á vef Vegagerðarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×