Skoðun

Um­deildasti fríverslunar­samningur sögunnar?

Arnar Þór Ingólfsson skrifar

Á miðvikudag fór fram síðari umræða á Alþingi um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands. Umræðan stóð yfir í rúmar fjórar klukkustundir, frá 16:50 til 20:59.

Ég veit, ekki mjög spennandi umfjöllunarefni. En gefið mér smá séns!

Samkvæmt samantekt minni á þinglegri meðferð fríverslunarsamninga EFTA er það nefnilega algjört einsdæmi að umræða um fríverslunarsamning taki slíkan tíma. Að minnsta kosti frá aldamótum.

Þátttakendum í umræðunni tókst því að slá met í lengd umræðu um fríverslunarsamning á vegum EFTA-ríkjanna.

Fyrra met mölbrotið

Áður hafði verið rætt lengst um fullgildingu fríverslunarsamninga EFTA-ríkjanna við Tyrkland og Filippseyjar árið 2019. Umræða um hvorn samning tók rúmlega eina og hálfa klukkustund, samanlagt í fyrri og síðari umræðum.

Efnisleg umræða um þessa tvo samninga fjallaði um hvort það væri góður bragur á því að Íslendingar fullgiltu samningana á sama tíma og stjórnvöld í þessum tveimur ríkjum, þar sem ríkisstjórnir Erdogans og Dutertes stæðu fyrir mannréttindabrotum.

Þessir samningar voru afgreiddir úr utanríkismálanefnd með fyrirvara af sumum nefndarmönnum og sumir flokkar lögðust gegn fullgildingu samninganna við atkvæðagreiðslu í þinginu.

Hvað er það þá við fríverslunarsamninginn við Taíland sem stóð svona í þingheimi? Stutta svarið: Ekkert.

Fjögurra tíma tal um gagnsemi og möguleika

Utanríkismálanefnd þingsins var þvert á móti einróma um fullgildingu samningsins í nefndaráliti sínu og allir viðstaddir þingmenn samþykktu þingsályktunartillöguna þegar hún var borin upp til atkvæða á þingfundi fyrir hádegi í gær.

Þrátt fyrir þetta náðu þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks að halda uppi umræðu um samninginn í rúmar fjórar klukkustundir í fyrradag. Aðallega um hvað þeir væru ánægðir með hann og öll tækifærin sem í honum fælust.

Umræðan fór allvíða. Einn þingmaður minntist á að hann teldi að hljómsveitin Sigur Rós hefði verið á ferðalagi um Asíu fyrir skemmstu, þó hefði sveitin sennilega ekki spilað í Taílandi. Með aukinni velsæld Taílands og stækkandi millistétt myndu þó möguleikar Taílendinga til að taka á móti menningu aukist og mögulega gætu Íslendingar líka farið að kynna sér taílenska bókmenntir í auknum mæli með auknum viðskiptatengslum þjóðanna.

Það fer þó eftir því hvort Íslendingar muni geta lesið sér til gagns í framtíðinni, en umræðan spannst á einum tímapunkti yfir í samanburð á íslenska menntakerfinu og því taílenska. „Ef við höldum áfram sömu leið mun Taíland fara upp og við fara niður,“ sagði einn þingmaður í þeim upplýsandi samræðum.

Þegar klukkan var farin að ganga níu í gærkvöldi ræddu tveir þingmenn það sín á milli hvort íslenska kvótakerfið gæti nýst taílenskum sjávarútvegi. Hvort aflamarkskerfið okkar væri hreinlega sjálfstæð útflutningsvara.

Í þeirri áhugaverðu umræðu var því meðal annars haldið til haga að þegar kæmi að nýtingu auðlinda sjávar skipti ekki öllu máli hvort þjóðir teldu 400 þúsund manns eða 70 milljónir. Grunnlögmálin væru þau sömu og fiskarnir syntu í sjónum óháð því hversu margir mennirnir væru í landi.

Þingmaðurinn sem lét þau orð falla sló þó þann fyrirvara að hann væri ekki fræðimaður á sviðinu.

Til hamingju!

Bryndísi Haraldsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni, Jóni Pétri Zimsen, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, Vilhjálmi Árnasyni, Þorsteini B. Sæmundssyni, Þorgrími Sigmundssyni, Sigríði Á. Andersen, Gísla Stefánssyni, Ólafi Adolfssyni og Karli Gauta Hjaltasyni óska ég hjartanlega til hamingju með umræðuna.

Umræðu, sem er auðvitað bara ein nýjasta birtingarmynd þess að stjórnarandstaðan mun reyna hvað hún getur til þess að koma í veg fyrir að Alþingi geti starfað með eðlilegum hætti að þeim málum sem ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur komið sér saman um að hrinda í verk, í þágu fólksins í landinu, með skýrt lýðræðislegt umboð að baki sér.

Topp 10 lengstu umræður um fríverslunarsamninga EFTA á Alþingi frá aldamótum

  1. Samningur við Taíland (156. þing) – 4 tímar og 18 mínútur
  2. Samningur við Filippseyjar (149. þing) – 1 tími og 41 mínúta
  3. Samningur við Tyrkland (149. þing) – 1 tími og 37 mínútur
  4. Samningur við Georgíu (146. þing) – 46 mínútur
  5. Samvinnusamningur við Indland (156. þing) – 41 mínúta
  6. Samningur við Persaflóaríkin (140. þing) – 28 mínútur
  7. Samningur Ísl., Noregs og Liechtenstein við Bretland (152. þing) – 25 mínútur
  8. Samningur við Kanada (135. þing) – 22 mínútur
  9. Samningur og landbúnaðarsamningur við Kólumbíu (143. þing) – 18 mínútur
  10. Breytingar á samningi við Chile (156. þing) – 16 mínútur

Höfundur starfar fyrir þingflokk Samfylkingarinnar og er áhugamaður um fríverslunarsamninga.




Skoðun

Sjá meira


×