Íslenski boltinn

Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Anna Björk er komin heim.
Anna Björk er komin heim. KR

Hin þaulreynda Anna Björk Kristjánsdóttir samdi nýverið við uppeldisfélag sitt KR og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í fótbolta í sumar. Þessi fyrrum atvinnu- og landsliðskona segir allt annan anda í KR nú en þegar hún lék síðast með liðinu.

Anna Björk hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari á ferli sínum og þá að baki farsælan feril erlendis þar sem hún lék í Svíþjóð, Hollandi, Frakklandi og á Ítalíu. Jafnframt lék hún 43 A-landsleiki á sínum tíma.

Hún hefur verið frá keppni undanfarna mánuði þar sem hún er nýorðin móðir. Anna Björk ræddi meðgönguna og endurkomu sína í KR við Fótbolti.net. Þar segir hún að stjórn Vals hafi aldrei heyrt í henni eftir að hún varð ólétt.

Hún er svo virkilega spennt fyrir komandi verkefni í Vesturbænum. Hún segir tilfinninguna góða og að hún þekki enn mörg tengd félaginu.

„Það hefur verið gagnrýni á metnað félagsins gagnvart kvennaboltanum en nú finnst mér andinn allt annar. KR vill gera betur og koma kvennaliðinu aftur í fremstu röð og það tekur tíma, en einhvers staðar þarf að byrja,“ sagði Anna Björk við Fótbolti.net.

Anna Björk segir einnig í viðtalinu að KR hafi reglulega haft samband í gegnum árin en aldrei hafi verið rétti tíminn til að snúa heim. Nú gekk það hins vegar upp og er miðvörðurinn reyndi spenntur fyrir komandi tímum.

„Mér finnst spennandi að taka þátt í uppbyggingunni. Þó ég sé ekki tilbúin að spila strax get ég vonandi gefið af mér og hjálpað liðinu.“

Nýliðar KR hafa náð í fjögur stig í fyrstu tveimur leikjum sínum í Lengjudeildinni. Liðið komst þá í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins en átti aldrei roð í Þór/KA, lokatölur 6-0 í leik liðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×