Viðskipti innlent

Til­efni fyrir ríkið að í­huga sölu Lands­bankans

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Konráð Guðjónsson hagfræðingur segir niðurstöðu Íslandsbankasölunnar virðast vera góða.
Konráð Guðjónsson hagfræðingur segir niðurstöðu Íslandsbankasölunnar virðast vera góða. Vísir/Vilhelm

Hagfræðingur segir jákvætt að tekist hafi að selja allan hlut ríkis í Íslandsbanka. Mikil þátttaka almennings sé góð fyrir markaðinn. Ríkið hljóti nú að íhuga að selja Landsbankann.

Útboð á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka lauk síðdegis í gær og nam heildarvirði útboðsins 90,6 milljörðum króna. Þar af námu tilboð einstaklinga, sem nutu forgangs í útboðinu, 88,2 milljörðum króna. 31.274 einstaklingar tóku þátt í útboðinu.

Gott fyrir íslenskt fjármálakerfi

Til stóð að selja minnst tuttugu prósenta hlut í bankanum en vegna góðrar þátttöku var allur hlutur ríkisins seldur. Hagfræðingur segir gott að það hafi tekist í einni atrennu.

„Það er að vísu með þeim tilkostnaði að frávikið frá síðasta markaðsverði er meira en í útboðinu árið 2022. Það er einhver kostnaður þar en engu að síður bara mjög góð niðurstaða og gott að þessu ferli sé loksins lokið,“ segir Konráð Guðjónsson hagfræðingur.

Hann segir ekki endilega koma á óvart að það hafi tekist að selja allan hlutinn. Meira komi á óvart hve mikil eftirspurnin var.

„Það er bara mjög gott fyrir íslenskan hlutabréfamarkað, það er gott fyrir íslenskt fjármálakerfi og ég held það sýni það að það er töluverð eftirspurn eftir að eiga hlut í íslenskum fjármálafyrirtækjum.“

Eftirspurnin greinilega til staðar

Tímasetningin virðist hafa verið ágæt.

„Ég held að upplifunin hafi verið bara mjög góð stemning einhvern vegin fyrir útboðinu og útboð eru oft háð því,“ segir Konráð. 

„Þróunin á hlutabréfamarkaði síðustu þrjú ár hefur satt best að segja ekki verið upp á marga fiska heilt yfir. Það sem er kannski jákvætt í þessu er að sjá að það er tiltrú á íslenskan hlutabréfamarkað þrátt fyrir allt“

Landsbankinn er nú eini bankinn í eigu ríkisins. Konráð segir að nú vakni upp spurningar hvort gott gengi í þessari sölu leiði til endurmats á eignarhlut í Landsbankanum.

„Eftirspurnin er greinilega til staðar þarna,“ segir hann. 

„Ég yrði ekkert hissa ef það verður skoðað hvort það komi til álita að selja einhvern hlut í Landsbankanum. Bæði af því að það dregur úr áhættu ríkissjóðs, það lækkar skuldir og svo er greinilegt að almenningur hefur áhuga á því að eiga hlut í fjármálafyrirtæki.“


Tengdar fréttir

Metþát­taka al­mennings í út­boði Ís­lands­banka lyftir upp öllum markaðinum

Hlutabréfaverð flestra félaga í Kauphöllinni hefur rokið upp í morgun eftir að ljóst varð að tugir þúsunda almennra fjárfesta kaupa nánast allan 45 prósenta hlut ríkissjóðs Íslandsbanka, en væntingar standa til þess að veruleg þátttaka almennings í útboðinu muni í framhaldinu styðja við hlutabréfamarkaðinn. Eftir snarpa gengisstyrkingu krónunnar á meðan útboðinu stóð hefur hún núna lækkað nokkuð sem af er degi enda ljóst að ekkert verður af aðkomu erlendra fjárfesta, eins og vonir stóðu til.

Himin­lifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir fagnaðarefni hve mikinn áhuga almenningur hafi haft á útboði í eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. Hann hefur ekki áhyggjur af því hve lítinn hluta fagfjárfestar fengu í útboðinu og segist ekki telja að selja hefði mátt hlutina á hærra verði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×