Körfubolti

Daníel tekur við KR

Sindri Sverrisson skrifar
Daníel Andri Halldórsson er orðinn þjálfari KR.
Daníel Andri Halldórsson er orðinn þjálfari KR. KR

Daníel Andri Halldórsson, fyrrverandi þjálfari Þórs á Akureyri, var í dag kynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs KR í körfubolta. Hann mun því stýra liðinu í efstu deild á næstu leiktíð.

Samningur Daníels er til tveggja ára en hann mun einnig þjálfa yngri flokka hjá KR-ingum.

Daníel tekur við af Herði Unnsteinssyni sem í gær greindi frá því að hann væri hættur þjálfun KR, eftir að hafa á dögunum skilað liðinu upp úr 1. deildinni. Hörður, sem stýrt hefur umfjöllun Stöðvar 2 Sports um Bónus deild kvenna, hafði starfað í fimm ár í Vesturbænum.

Daníel hefur náð stórgóðum árangri sem þjálfari Þórs en hann tilkynnti í síðasta mánuði að hann væri hættur hjá félaginu, eftir að Þórskonur féllu úr leik gegn Val í úrslitakeppni Bónus-deildarinnar.

Undir stjórn Daníels komst Þór upp í efstu deild og endaði í 4. sæti deildarkeppninnar. Í fyrra komst liðið í úrslitaleik VÍS-bikarsins og liðið vann Keflavík í Meistarakeppninni í byrjun nýafstaðins keppnistímabils.

Daníel var í síðasta mánuði ráðinn sem einn þriggja aðstoðarlandsliðsþjálfara sem aðstoða munu Finnann Pekka Salminen með A-landslið kvenna.

Daníel Andri Halldórsson, Ólafur Jónas Sigurðsson og Emil Barja eru aðstoðarþjálfarar kvennalandsliðsins.KKÍ

Í tilkynningu frá KR segir Daníel Andri um nýja starfið sitt: „Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu verkefni og það eru mikil forréttindi að fá að starfa fyrir þennan klúbb næstu árin. Þetta er stórt og spennandi skref sem þessar stelpur eru að taka og ég er mjög ánægður að vera hluti af því.“

Egill Ástráðsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, segir: „Við erum afar ánægð með að fá Daníel í KR. Hann er gríðarlega efnilegur og spennandi þjálfari sem hefur náð frábærum árangri á stóra sviðinu undanfarin ár og mun spila lykilhlutverk í framtíðaráformum félagsins.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×