Fótbolti

Meistararnir töpuðu en Real vann í hita­leik

Smári Jökull Jónsson skrifar
Carlo Ancelotti segir Jude Bellingham til en Ancelotti var að stýra Real Madrid í næstsíðasta skipti í dag.
Carlo Ancelotti segir Jude Bellingham til en Ancelotti var að stýra Real Madrid í næstsíðasta skipti í dag. Vísir/Getty

Næstsíðasta umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í dag. Barcelona hefur nú þegar tryggt sér titilinn en liðið mætti Villareal á heimavelli.

Barcelona tryggði sér spænska titilinn um síðustu helgi og hafði því að litlu að keppa gegn Villareal í dag. Svipað var uppi á teningunum hjá gestunum því Villareal er eitt af fimm liðum sem er búið að tryggja sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Leikurinn var þó góð skemmtun. Ayoze Perez kom gestunum yfir strax á 4. mínútu áður en Lamine Yamal og Fermin Lopez komu Barcelona í 2-1 með tveimur mörkum á síðustu mínútum fyrri hálfleiks.

Santi Comesana jafnaði fyrir Villareal í 2-2 á 51. mínútu og á 80. mínútu skoraði Tajon Buchanan sigurmark gestanna sem geta því enn náð 4. sætinu af Athletic Bilbao með hagstæðum úrslitum í lokaumferðinni.

Real lauk leik tveimur fleiri

Madrídarliðin Real og Atletico unnu bæði sigra í sínum leikjum í dag. Atletcio vann 3-1 sigur á Real Betis á heimavelli með tveimur mörkum frá Julian Alvarez og sitthvoru markinu frá Robin Le Normand og Angel Correa.

Mikið gekk á í leik Sevilla og Real Madrid. Loic Bade fékk rautt spjald í liði Sevilla eftir tólf mínútur og Isaac Romero var einnig sendur í sturtu í byrjun síðari hálfleiks. Tveimur fleiri gekk liði Real samt illa að komast í forystu og það var ekki fyrr en á 75. mínútu sem Kylian Mbappe skoraði og Jude Bellingham bætti öðru marki við þremur mínútum fyrir leikslok.

Þá vann Real Sociedad 3-2 sigur á heimavelli gegn Girona en Orri Steinn Óskarsson var ekki í leikmannahópi liðs Sociedad vegna meiðsla.

Spennan er ekki mikil fyrir lokaumferðina í spænsku deildinni. Þrjú lið, Celta Vigo, Rayo Vallecano og Osasuna, berjast um tvö laus sæti í Evrópu- og Sambandsdeild og þá berjast Leganes og Espanyol um síðasta örugga sætið í deildinni á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×