Opinber áskorun til prófessorsins Brynjar Karl Sigurðsson skrifar 20. maí 2025 12:00 Jæja, nú hefur karmað loksins bankað upp á og prófessorinn Víðir Halldórsson er kominn út úr fylgsninu. Hér með býð ég honum opinberlega að mæta mér hvar og hvenær sem er, svo við getum farið yfir öll þau mál sem hann hefur svo lengi fjallað um varðandi mig körfuboltaþjálfarann. Það verður áhugavert að sjá hvaða rök eða rökleysu hann hyggst leggja fram þegar hann getur ekki lengur falið sig á bak við diplómað sitt, beitt gaslýsingu, rangfærslum án mótraka eða skotgrafarritum. Nú þarf hann að standa augliti til auglitis við mig og klára umræðuna í eitt skipti fyrir öll. Einhver gæti spurt hvers vegna ég vel þetta drama, hvers vegna ég geti ekki einfaldlega leyft fræðaföntunum að eiga sig. Svar mitt er einfalt: Víðir Halldórsson og Hafrún Kristjánsdóttir, fóru fremst í flokki og svertu heiður 14 stúlkna opinberlega sem ég þjálfaði með grófum hætti, þennan heiður er rétt að verja. Þetta er óþverraskapur sem löngu er kominn tími til að gera upp opinberlega. Forsaga málsins í punktum 2016: alla tíð hafa stelpur spilað í strákaliðum í yngstu flokkum. Heilt stelpulið er skráð í strákamót, fá ekki samkeppni stúlkumegin. Stelpulið vinnur oftast strákaliðin. Foreldrar og forráðamenn strákaliða verða ósáttir og kvarta til KKÍ. 2017: KKÍ þolir ekki pressuna og hendir stelpuliðinu úr keppni. Stelpuliðið óskar eftir skýringum en fær engin svör frá KKÍ. Stelpunum og foreldrum þeirra finnst þetta ósanngjarnt og hefja vitundarvakningu. KKÍ safnar saman 22 þjálfurum sem fordæma vitundarvakninguna og þjálfarann. Vitundarvakningin var gegn hugmynd þjálfara, hann vildi aðra aðferð. Fræðafantar taka undir þessa fordæmingu. Stelpuliðið fær áfram engin svör og ákveður að mótmæla með því að sleppa medalíum sem þær vinna og halda áhrifamikla ræðu. KKÍ og nokkrir fræðafantar fordæma þjálfarann opinberlega. Þjálfarinn ákveður tímabundið að tjá sig ekki opinberlega. Foreldrar stúlkna stofna félagið Aþenu árið 2019. ÍSÍ beitir Aþenu kerfisbundnu einelti frá þeim tíma. 2021: Heimildarmyndin „Hækkum rána“ kemur út. Þjálfari og aðstandendur stelpnanna byrja að tjá sig opinberlega. Fræðafantar verða taugaóstyrkir því þau vita að þau höfðu rangt fyrir sér. Erlendir fræðimenn sjá myndina og þjálfunaraðferðir ekki sömu augum og íslensku fræðafantarnir. Almenningur á Íslandi byrjar að sjá sannleikann. Fræðasamfélagið beitir gaslýsingu og strámannarökum til að afvegaleiða almenna umræðu. Víðir og Hafrún ásamt nokkrum öðrum fræðimönnum reyna áfram að sverta mannorð þjálfara, stúlkna og aðstandenda þeirra. Körfuboltaþjálfari kallar eftir opinberri umræðu en fræðifantar koma sér undan, halda áfram að níða og beita strámannarökum. Leikendur Víðir Halldórsson og Hafrún Kristjánsdóttir hafa í krafti stöðu sinnar staðið fremst í flokki þeirra sem níðir leikmenn mína, foreldra þeirra og samstarfsfólk. Í sex ár hafa þau sakað mig um alls konar ofbeldi og ásakað þjálfara, stjórnarfólk og foreldra um að vera meðsek. Þau kalla iðkendur mína „heilaþvegin og vitskert fórnarlömb.“ Þetta er langt yfir mitt strikið. Bakgrunnur og aðferð Víðis Prófessorinn hóf fyrir nokkrum árum fyrirlestra þar sem hann meðal annars notar mig sem dæmi um það sem miður fer í íþróttaþjálfun. Hann notar flókin fræðileg hugtök sem fáir skilja og enn færri gagnrýna, byggir harkalega gagnrýni á sínum skoðunum í stað staðreynda. Þessar árásir byrjuðu þegar heimildarmyndin „Hækkum rána“ kom út. Þá sóttist prófessorinn líka eftir að komast í fjölmiðla til að afvegaleiða umræðuna í krafti menntunar og stöðu. Þetta var nauðvörn fyrir fræðafanta og vinnuveitendur þeirra innan íþróttaforystunnar. Mannorðsmorð er besta lýsing á þeim verknaði. Tímamót Stelpurnar sem ég hóf að þjálfa fyrir 10 árum síðan verða allar 18 ára á þessu ári og geta loksins tjáð sig frjálst. Engin ásökun hefur staðist, ekkert foreldri hefur stigið fram undir nafni til að saka mig um misgjörðir. Þær ásakanir sem um ræðir hafa allar nema þrjár komið frá þriðja aðila án þess að meintur þolandi hafi kvartað, og allar þessar ásakanir hafa verið nafnlausar. Það þarf ekki mikið til í okkar samfélagi til að fá fólk með sér í rógburð og illsku. Prófessorinn er besta dæmið um að það nægi að móðga fólk með því einu að krefjast þess að það beri ábyrgð á eigin gjörðum til þess að það sé tilbúið að taka þátt í slaufun og mannorðsmorði. Fræðileg óheilindi Ég hef verið viðfangsefni umfangsmikillar heimildarmyndagerðar í áratug. 33 þjálfarar hafa starfað með mér og foreldrar fylgst með öllum æfingum og fundum. Það er hin sanna ástæða fyrir því að enginn hefur getað sýnt fram á vítaverða háttsemi mína nema með ósönnum nafnlausum fullyrðingum og hagræðingu gagna sem auðvelt er að sýna fram á. Það eru einfaldlega of margir sem vita sannleikann. Prófessorinn í gegnum árin hefur stöðugt breytt ásökunum sínum án nokkurs fræðilegs grundvallar. Fyrsta ásökun var „afreksvæðing“, svo „early specialisation“, síðan „rúmenskur spordrekaþjálfari“ og „trúarleiðtogi“ og nú síðast „tilraunir á börnum“ og að vera ekki með fræðilega fótfestu. Þetta er ófaglegt og lýsir illa fræðimanni. Hann velur hvernig hann matreiðir gagnrýni sína og býr til rök til að styðja fyrirframgefna niðurstöðu sína án þess að skoða forsendur, raunveruleg gögn málsins eða mæta á staðinn og ræða við fólk. Aðrir fræðafantar klappa fyrir honum og hann fyrir þeim. Er háskólasamfélagið í alvöru ok með gengisfellingu akademíunnar á þennan hátt? Skortur á faglegri reynslu og hlutleysi Prófessorinn, eins og margir aðrir fræðafantar, hefur enga reynslu af raunverulegri þjálfun íþrótta. Það verður greinilegt þegar hann telur að þjálfarar á Íslandi byggi þjálfun sína á rannsóknum sem íslenska fræðasamfélagið hefur lagt út sem viðmið fyrir íslenska þjálfara. Þegar aðeins er kafað ofan í þær fáu heimildir sem prófessorinn leggur til grundvallar koma fram miklar brotalamir í túlkun heimilda og vinnslu rannsókna. Annað sem rýrir trúverðugleika hans eru störf sem prófessorinn tekur að sér fyrir íþróttaforystuna, sem ég hef gagnrýnt harðlega. Þetta gerir hlutleysi hans mjög vafasamt og er slæmt, þar sem hlutverk fræðasamfélags hlýtur að vera að gagnrýna og fjalla um fræðin frá öllum hliðum á hlutlausan hátt. Það dylst engum að svo er ekki. Prófessorinn talar um réttindi kvenna og að íþróttir styrki karakter af eigin frumkvæði, en talar það niður þegar slíkt birtist hjá þeim sem hann gagnrýnir, sérstaklega ef hann telur það ógna sínu eigin virði. Hann er þekktur fyrir að forðast rannsóknir og koma fram með skoðanir án gagna. Slíkt er vægast sagt undarlegt fyrir fræðimann, þótt það sé ekki óvænt miðað við takmarkað fræðilegt framlag hans (t.d. birtingar og tilvitnanir). Opinber áskorun Ég hef í fjögur ár kallað eftir opinberri umræðu. Fjórum sinnum hefur okkur verið boðið í fjölmiðla saman, en í öll skiptin hefur hann afþakkað. Nú er kominn tími fyrir Víði að standa við orð sín, sýna hugrekki og mæta mér í opinni og heiðarlegri umræðu. Ályktun Þegar Víðir segir: „Ég hef ekkert að ræða við þjálfara sem tekur ekki rökum og ræðst á gagnrýnendur með yfirgangi og ærumeiðingum,“ lýsir það best hans eigin fræðilegu mótsögn. Alvarlegar ásakanir kalla á umræðu augliti til auglitis—ekki bara yfirlýsingar úr fjarlægð. Nú er röðin komin að prófessornum að nefna stað og stund. Höfundur er stjórnendaþjálfari, atvinnurekandi, körfuboltaþjálfari og einn þeirra sem bauð sig nýverið fram til forseta ÍSÍ. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Körfubolti Íþróttir barna Aþena Mest lesið Halldór 21.06.2025 Halldór “Jákvæð viðbrögð” um veiðigjaldið? Heimir Örn Árnason Skoðun Skattgreiðendur látnir borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun Skoðun Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar Skoðun “Jákvæð viðbrögð” um veiðigjaldið? Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Skattgreiðendur látnir borga brúsann Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Gróf misbeiting illa fengins valds Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vísir að lægri orkureikningi Einar Vilmarsson skrifar Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald skrifar Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna Clara Ganslandt skrifar Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Blaður 35 Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Nú hefst samræmt próf í stærðfræði Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Sanngirni í Kópavogsmódelinu Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Skapandi framtíð – forvarnir og félagsstarf í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar Skoðun Hvaða orka? Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Það skiptir máli hvernig gervigreind er notuð í kennslu Hjörvar Ingi Haraldsson skrifar Sjá meira
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Skoðun Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson skrifar
Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar
Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar
Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Grein til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Sveinn Dúa Hjörleifsson,Eyrún Unnarsdóttir,Elmar GIlbertsson,Álfheiður Guðmundsdóttir,Kristján Jóhannesson Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun