Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Atli Ísleifsson skrifar 30. maí 2025 10:24 Sigurður Gunnar Markússon, forstöðumaður innkaupa og vöruflokkastýringar og Gunnhildur Jódís Ísaksdóttir, forstöðumaður viðskiptaþróunar og umbóta hjá Krónunni. Rúnar Kristmannsson Sigurður Gunnar Markússon og Gunnhildur Jódís Ísaksdóttir hafa tekið við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni.
Í tilkynningu segir að breytingarnar séu ætlaðar að styðja við vöxt, efla upplifun viðskiptavina og undirstrika skýra framtíðarsýn og skuldbindingu til stöðugra umbóta og framúrskarandi þjónustu. „Sigurður Gunnar Markússon, sem gegnt hefur hlutverki forstöðumanns þróunar og uppbyggingar verslana Krónunnar, hefur tekið við sem forstöðumaður innkaupa og vöruflokkastýringar. Sigurður hefur áralanga og víðtæka reynslu af störfum innan Krónunnar síðastliðin 30 ár og verið leiðandi afl í þróun og uppbyggingu fyrirtækisins. Hann leiddi meðal annars innkaup og vöruflokkastýringu Krónunnar í tólf ár fram til ársins 2021, og kemur því inn í hlutverkið með dýrmæta þekkingu og reynslu sem mun nýtast vel við að mæta væntingum og þörfum viðskiptavina. Samhliða þessum breytingum hefur Gunnhildur Jódís Ísaksdóttir verið ráðin í stöðu forstöðumanns viðskiptaþróunar og umbóta. Gunnhildur hefur frá byrjun árs 2024 starfað sem verkefnastjóri viðskiptaþróunar og umbóta hjá Krónunni en áður starfaði hún í viðskiptaþróun hjá Volvo Penta í Svíþjóð og síðar sem umbótasérfræðingur hjá Marel hér á landi. Gunnhildur er með M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Chalmers University of Technology. Með þessu hlutverki er lagður enn frekari grunnur að umbótum og nýjum tækifærum til að skapa lausnir sem styðja við framúrskarandi þjónustu og vöxt Krónunnar til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Verslun Festi Mest lesið Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Viðskipti innlent Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Viðskipti innlent Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Viðskipti innlent Jensens Bøfhus lokað Viðskipti erlent Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Viðskipti innlent Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Samstarf Grafalvarleg staða Viðskipti innlent „Íslenski neytandinn er allavega ekki að sýna merki um samdrátt“ Neytendur Græða á tá og fingri á svikum og prettum Viðskipti erlent SFS vilja margfalda fiskeldi og fagna erlendri fjárfestingu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu Grafalvarleg staða Sambíóin í Mjóddinni víkja fyrir Nova Bein útsending: Umræður á seinni degi Sjávarútvegsráðstefnunnar Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Ætlað að verða nýtt íslenskt kennileiti á heimsmælikvarða Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs Telja viðgerð geta tekið allt að ár Ráðin forstöðukona Þjónustu Veitna Bretar veita Alvotech leyfið sem fékkst ekki í Bandaríkjunum Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Samorku Útlit fyrir „hrollkaldan vetur“ en eitt ljós í myrkinu Bein útsending: Leiðir til að efla hlutabréfamarkaðinn Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Sjá meira