„Ég vara mjög við því að menn beiti þessu úrræði“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 30. maí 2025 13:28 Sigurður Kári Kristjánsson er ekki skemmt yfir ummælum Ólafs Þ. Harðarsonar. Vísir Lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins varar við öllum hugmyndum um að grípa til sjaldgæfs ákvæðis sem heimilar takmörkun á ræðutíma þingmanna. Hugmyndir um að takmarka ræðutíma til að koma í veg fyrir mögulegt málþóf hafa verið viðraðar í fjölmiðlum. Atvinnuvegaráðherra telur ekki tímabært að ræða hvort gripið verði til þessa ráðs, en útilokar það ekki.
Nokkur fjöldi óafgreiddra mála liggja fyrir þinginu sem ríkisstjórnin vill klára áður en þing fer í sumarfrí, meðal annars umdeilt frumvarp um hækkun veiðigjalda. Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur og prófessor emeritus, ræddi þá möguleika sem stjórnarmeirihlutinn hefur til að klára afgreiðslu sinna mála fyrir sumarfrí í viðtali við Rúv í vikunni. Meðal annars kom fram í viðtalinu við Ólaf, að ef svo fari að stjórnarandstaðan ætli að reyna að stoppa veiðigjaldafrumfarpið með málþófi, þá liggi að hans mati beinast við að stjórnin beiti ákvæði laga um þingsköp sem heimilar það að ræðutími í annarri og þriðju umræðu verði takmarkaður. Myndi setja þingstörf í algjört uppnám Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir þessi ummæli vera hættuleg. „Ég held að hugmyndin um það að stöðva umræður sé afar vond. Hún í fyrsta lagi skapar vont fordæmi til framtíðar, að taka málfrelsið af stjórnarandstöðunni. Ég held að það sé miklu heillavænlegra að reyna að ná einhverju samkomulagi um mál sem að deilur eru um,“ segir Sigurður Kári. Ekki verið beitt í áratugi Það sé ekki að ástæðulausu, sem ákvæðinu hafi ekki verið beitt í 66 ár, en því var síðast beitt árið 1959 og þar á undan árið 1949 í tengslum við umræðu um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. „Það mun leiða til þess að þingstörf til framtíðar þau lenda í algjöru uppnámi. Það muni ekki nást að klára nein mál og síðan þegar það koma til umfjöllunar frumvörp eða mál frá ríkisstjórninni sem að varða verulega hagsmuni, eins og áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, þá geturðu rétt ímyndað þér hvernig umræða um slík mál mun ganga ef að stjórnarandstaða sem hefur einhverja skoðun á því máli á það yfir höfði sér að meirihlutinn muni mögulega bara stöðva umræður ef að málið gengur ekki eins og þeir vilja. Þannig að ég vara nú mjög við því að menn beiti þessu úrræði,“ segir Sigurður, en hann skrifaði langan pistil á Facebook í gær þar sem hann reifar afstöðu sína til ummæla stjórnmálaprófessorsins. Hrifnari af því að fara „vel inn í sumarið“ Að óbreyttu fer þingið í sumarfrí þann 13. júní, sem er eftir tvær vikur. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, telur að nægur tími sé til stefnu. Finnst þér koma til greina að nýta heimild til að skerða ræðutíma í annarri umferð ef svo fer að umræður dragist á langinn? „Það er vitað mál að við fórum býsna seint, þingveturinn hófst seint af ákveðnum ástæðum, þannig að það er alveg rétt að það þarf að gera eitthvað. Ég er svona hrifnari að því að við förum bara vel inn í sumarið og klárum þau mál eins og við höfum gert og held að það sé rétta leiðin,“ svarar Hanna Katrín og heldur áfram. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.Vísir/Vilhelm „En það er alveg satt, þetta úrræði er til staðar og því er náttúrlega ætlað til þess að tryggja kjörnum meirihluta úrræði ef að svo fer að minnihlutinn á þingi ætlar sér bókstaflega að búa til stíflu sem ekki verður leyst. En ég held að það sé bara ekki tímabært að ræða það núna, við höfum góðan tíma framundan. Það er ekki einu sinni kominn júní, næsta þing á að hefjast um miðjan september, við höfum nægan tíma.“ Sigurður Kári tekur undir að ótímabært sé að ræða beitingu úrræðisins. Það kæmi honum mjög á óvart ef ákvæðinu yrði beitt. „Mér finnst engar líkur á því. Ég held að þetta sé frekar einhvers konar útspil til að kanna jarðveginn útaf þessum deilum sem hafa sprottið upp um einstök mál. En ég trúi því nú ekki fyrr en ég tek á því að heimildinni verði beitt,“ segir Sigurður Kári.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Breytingar á veiðigjöldum Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Sjá meira