Zion sakaður um tvær nauðganir, heimilisofbeldi og líflátshótanir Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. maí 2025 11:02 Zion Williamson spilar fyrir New Orleans Pelicans en hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Getty Körfuboltamaðurinn Zion Williamson, sem spilar fyrir New Orleans Pelicans, hefur verið sakaður um tvær nauðganir, heimilisofbeldi og áralanga ofbeldisfulla hegðun í málsókn sem höfðuð var fyrir dómstólum í Los Angeles á fimmtudag.
Stefnandinn, sem gengur undir dulnefninu Jane Doe, heldur því fram í kærunni að Williamson hafi nauðgað sér tvisvar árið 2020 í húsi sem hann leigði í Beverly Hills og hafi auk þess beitt hana ítrekuðu ofbeldi þar til sambandi þeirra lauk 2023. Í tólf síðna kæru, sem Guardian hefur undir höndunum, er að finna ásakanir um kynferðisofbeldi, eltihrellis-hegðun, frelsissviptingu og líkamlegt ofbeldi. Ofbeldið er sagt hafa átt sér stað í ríkjunum Kaliforníu, Louisiana, Texas og Oregon. Kynferðislegt, líkamlegt, andlegt og fjárhagslegt ofbeldi Konan lýsir því í málsókninni að hún hafi byrjað að deita Williamson árið 2018 þegar hann var á fyrsta ári í Duke-háskóla og hann hafi fljótt orðið ofbeldisfullur. Zion hafi verið stjórnsamur, ógnandi og beitt konuna ofbeldi. „Ofbeldið var kynferðislegt, líkamlegt, andlegt og fjárhagslegt,“ segir í kærunni. Zion Williamson varð stjarna þegar hann spilaði fyrir Duke í háskólaboltanum.vísir/getty Samkvæmt kærunni átti fyrsta nauðgunin sér stað 23. september 2020 þegar Zion lét einn af umboðsmönnum sínum koma með konuna á heimili sitt í Beverly Hills. Sjálfur hafi hann ekki komið í húsið fyrr en seinna um kvöldið og vildi þá stunda kynlíf. Konan hafi hins vegar sagst vera þreytt og vilja fara að sofa. „Verjandi kallaði stefnanda ‚snobbaða‘ og ‚tík‘ og sagði henni að hún gæti ekki farið að sofa án þessa að stunda kynlíf með honum,“ segir í kærunni. „Stefnandi sagði ‚nei‘ við verjanda. Verjandi negldi niður stefnanda á rúmið með hendur hennar fyrir aftan bak og nauðgaði henni,“ segir í kærunni. Þar að auki er því lýst hvernig hann hafi síðar grýtt síma konunnar þvert yfir herbergið, kyrkt hana og öskrað á hana. Nauðgun, kyrkingar og líflátshótanir Tveimur vikum síðar, þann 10. október 2020, átti annað atvik sér stað þegar konan lýsti yfir áhuga á að hitta vin í San Diego. Williamson hafi orðið brjálaður, grýtt hlutum og síðan ráðist á konuna og nauðgað henni aftur. „Verjandi tók síma og tölvu stefnanda og hélt þeim frá henni um hríð svo stefnandi gæti ekki haft samband við neinn til að fá far eitthvert annað, tilkynna árásina eða leita sér læknishjálpar,“ segir í kærunni. Ofbeldisfullri og stjórnsamri hegðun Williamson er einnig lýst í kærunni og er hann þar sakaður um að berja konuna, fara inn á heimili hennar án samþykkis, hóta því að dreifa nektarmyndum af henni og fylgjast með hreyfingum hennar. Þá er því lýst í kærunni að Zion hafi hótað að láta vopnaðan öryggisvörð sinn skjóta konuna í höfuðið og hótað því að drepa foreldra konunnar eftir að hann tjáði henni að hann vissi hvar þau ættu heima. Zion Williamson þótti gríðarefnilegur þegar hann kom í NBA-deildina en ferillinn hefur einkennst af vonbriðgum.Getty Einu sinni árið 2022 hafi Williamson þvingað konuna inn í bíl og skellt hurð á höfuð hennar þegar hún reyndi að flýja með þeim afleiðingum að hún missti meðvitund. Hún heldur því fram að hann hafi mörgum sinnum kyrkt hana þar til hún missti meðvitund. Yfirleitt hafi hann verið ölvaður eða undir áhrifum kókaíns. Þetta ofbeldi hafi verið án samþykkis konunnar og gegn vilja hennar en í kærunni er átján mismunandi atvikum lýst sem ýmist einkenndust af ofbeldi eða stjórnun. Konan segist hafa mátt þola langvarandi skaða, þar á meðal kvíða, þunglyndi, svefnleysi og líkamlega áverka. Konan óskar eftir skaðabótum, refsibótum og réttarhöldum með kviðdómi. Neitar ásökunum og hyggst leggja fram gagnkröfu Williamson, sem var valinn fyrstur í nýliðavali NBA árið 2019 og hefur tvisvar verið valinn sem All-Star-leikmaður, neitar ásökunum konunnar gegnum lögfræðing sinn, Michael Balascio. „Við tökum þessu ásökunum alvarlega og höfnum þeim ótvírætt,“ sagði Balascio í yfirlýsingu. Ásakanirnar væru falskar og ófyrirleitnar. Balascio lýsir konunni sem fyrrverandi kunningja Williamson og þau hafi átt í frjálslegu sambandi sem var með samþykki beggja. Konan hafi ekki viðrað neinar athugasemdir meðan á sambandinu stóð eða eftir það. „Aðeins eftir að vinskapnum lauk byrjaði hún að krefjast milljóna dala,“ sagði Balascio í yfirlýsingunni. Lögfræðiteymi Williamson segir hann hafa skilað skýrslu hjá lögreglu þar sem hann sakar konuna um fjárkúgun. Þá segir Balascio að Williamson hyggist leggja fram gagnkröfu þar sem hann krefst „töluverðra skaðabóta fyrir þessa ærumeiðandi kæru.“ Talsmaður New Orlean Pelicans sagði liðið meðvitað um málið en vísi öllum spurningum sem varða það til lögfræðiteymis Williamson. Williamson hefur aðeins spilað 214 leiki (af 410 mögulegum) yfir fimm ára feril hans hjá Pelicans í NBA-deildinni vegna meiðsla. Hann hefur aldrei náð að standast þær gríðarlegu væntingar sem til hans voru gerðar. Þá hefur hann verið í vandræðum utan vallar en fyrir tveimur árum sakaði klámstjarna hann um að hafa haldið framhjá sér með tilvonandi barnsmóður hans og stigu þá fleiri konur fram og sögðust hafa átt í sambandi með honum.
Bandaríkin NBA Kynferðisofbeldi Heimilisofbeldi Kynbundið ofbeldi Tengdar fréttir Zion missir af byrjun tímabilsins New Orleans Pelicans verður án ungstirnisins Zion Williamson í fyrstu leikjum tímabilsins í NBA deildinni. 19. október 2019 08:00 Byrjun Zion Williamson þegar orðin söguleg Bandaríski körfuboltamaðurinn Zion Williamson lét bíða eftir sér á sínu fyrsta tímabili í NBA-deildinni en frammistaðan hans hefur ekki ollið miklum vonbrigðum. 12. febrúar 2020 18:30 Mest lesið „Hann var orðinn svo ofboðslega kaldur“ Innlent Öll áhöfnin talin af Erlent Inga komin úr átján daga veikindaleyfi: „Hún getur náð okkur, veiran“ Innlent Fólk komi rautt í framan eins og humar Innlent Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Innlent Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Innlent Skilur ekki hvernig ríkið ætlar að komast undan ábyrgð Innlent Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Erlent Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Innlent Í gæsluvarðhald eftir ofsóknir í garð konu og barna hennar Innlent Fleiri fréttir Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Friðarviðræður sagðar í uppnámi Virðast ekki vilja takmarka sig við tíu milljónir Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Spánarkonungur lánaði Leó einkaþotuna Dramatík í tveimur þáttum: Gervigreindarbóla og óður um yfirráð Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Sjá meira
Zion missir af byrjun tímabilsins New Orleans Pelicans verður án ungstirnisins Zion Williamson í fyrstu leikjum tímabilsins í NBA deildinni. 19. október 2019 08:00
Byrjun Zion Williamson þegar orðin söguleg Bandaríski körfuboltamaðurinn Zion Williamson lét bíða eftir sér á sínu fyrsta tímabili í NBA-deildinni en frammistaðan hans hefur ekki ollið miklum vonbrigðum. 12. febrúar 2020 18:30
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“