Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Samúel Karl Ólason skrifar 4. júní 2025 10:21 Seglar sem eru að mestu framleiddir í Kína eru sérstaklega mikilvægir við framleiðslu rafmagnsbíla og hafa bílaframleiðendur varað við því að framleiðslan gæti lamast á næstunni. Getty/Jens Schlueter Forsvarsmenn bílaframleiðenda og annarra fyrirtækja víðsvegar um heiminn vara við því að bílaframleiðsla gæti stöðvast vegna skorts á sérstökum seglum, sem eru nánast eingöngu framleiddir í Kína. Verksmiðjum gæti verið lokað víða um heim á næstu vikum felli Kínverjar ekki niður tálma á útflutningi þessara segla og sjaldgæfra málma sem notaðir eru við framleiðslu þeirra.
Meðal þeirra sem hafa varað við stöðunni eru bílaframleiðendur í Indlandi, Þýskalandi og í Bandaríkjunum, samkvæmt frétt Reuters. Verið er að skoða að færa verksmiðjur til Kína til að komast hjá tálmum sem hafa verið reistir kringum sjaldgæfa málma. Kínverjar allsráðandi Sjaldgæfir málmar finnast víða í skorpu jarðarinnar. Þeir eru þó sjaldan í æðum eða á takmörkuðum svæðum, heldur finnast þeir oftar en ekki dreifðir í tilteknu bergi. Vegna þessa getur reynst erfitt að sækja þá í jörðina og þar að auki er vinnsla þeirra erfið og hefur slæm áhrif á umhverfið. Málmarnir eru þó nauðsynlegir við framleiðslu nútíma tækja og tóla eins og tölva, bíla, rafhlaðna og hergagna, svo eitthvað sé nefnt. Kínverjar eru með gífurlegt forskot á heimsvísu þegar kemur að greftri og vinnslu sjaldgæfra málma en vinnslan hefur dregist verulega saman í Bandaríkjunum á undanförnum áratugum. Sjaldgæfir málmar finnast í berglögum og getur verið erfitt að vinna þá.Getty/Marcus Yam Sérfræðingar Alþjóðaorkumálastofnunarinnar áætla, samkvæmt frétt CNN, að Kínverjar grafi um 61 prósent af sjaldgæfum málmum heimsins úr jörðu. Þegar kemur að vinnslu þeirra eru Kínverjar þó með um 92 prósent markaðsshlutdeild á heimsvísu. Kínverjar eru nánast þeir einu sem framleiða nokkra tiltekna málma. Undir lok síðasta árs gerðist það í fyrsta sinn að ráðamenn í Kína lokuðu á aðgengi Bandaríkjamanna að nokkrum tegundum sjaldgæfra málma. Þeir málmar eru meðal annars notaðir við framleiðslu hálfleiðara, ljósleiðara, sólarsella og byssukúlna, svo eitthvað sé nefnt. Takmörkuðu aðgengi að seglum Ráðamenn í Kína lýstu því yfir í apríl að útflutningur yrði takmarkaður á nokkrum tegundum svokallaðra sjaldgæfra málma og segla sem eru meðal annars framleiddir úr þessum málmum. Var það eftir að Trump beitti Kína umfangsmiklum tollum. Sjá einnig: Tollar á ál og stál hækka Meðal annars er um að ræða terbín og dysprósín. Þeir málmar eru notaðir í segla til að efla hitaþol þeirra. Slíkir seglar eru notaðir í framleiðslu alls konar vara, eins og snjallsíma og orrustuþotur. Seglarnir eru sérstaklega nauðsynlegir við framleiðslu rafmagnsbíla. Takmarkanirnar hafa komið niður á birgðakeðjum fjölmargra framleiðenda víða um heim. Kínverjar áttu að fella þessa tálma niður vegna samkomulags við ríkisstjórn Donalds Trump varðandi tolla hans, en í frétt Wall Street Journal segir að það hafi gengið hægt, þar sem kínverskir embættismenn hafi dregið lappirnar þegar kemur að því að veita útflutningsleyfi sem til þarf. Trump hefur sakað Kínverja um að ganga á bak orða sinna vegna þessa. Þá hafa Kínverjar vísað á móti til takmarkana á sölu tölvuflaga til Kína og til þess að ríkisstjórn Trumps hafi svipt kínverska námsmenn dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Búist er við því að Trump muni ræða við Xi Jinping, forseta Kína, í vikunni. Sjaldgæfir málmar verða líklega ofarlega á listanum yfir þau málefni sem Trump vill ræða við kollega sinn. Færsla Donalds Trump um það hvað Xi Jinping, forseti Kína, er erfiður viðureigna. Vara við lömun framleiðslu Forsvarsmenn bílaiðnaðarins í Bandaríkjunum vöruðu ráðamenn í Bandaríkjunum við því í síðasta mánuði að iðnaðurinn gæti lamast á næstunni vegna tálmanna í Kína. Meðal annars er verið að skoða að koma upp sérstökum verksmiðjum í Kína þar sem hægt yrði að bæta umræddum seglum við þau tæki og tól sem þarfnast þeirra. Þannig væri hægt að komast hjá tálmunum en það fer þvert gegn vilja Trumps um að auka framleiðslu í Bandaríkjunum og myndi reynast kostnaðarsamt. Einnig er verið að leita annarra leiða til að kaupa segla eða málmana sem til þarf en engin önnur leið sem gæti annað þeirri eftirspurn sem er til staðar hefur fundist. Sjaldgæfir málmar spila sífellt stærra hlutverk á taflborðum stórvelda heimsins og er verið að leita leiða til að framleiða meira af þeim víða um heim. Slík vinna tekur þó tíma og getur verið kostnaðarsöm. Það er fátt sem bendir til þess að Kínverjar muni missa yfirburðastöðu sína á þessum markaði á næstunni.
Bandaríkin Kína Donald Trump Skattar og tollar Bílar Mest lesið Gera fjölmargar breytingar á kílómetragjaldinu Neytendur Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Viðskipti innlent Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Viðskipti innlent Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Samstarf Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Segir mun á launum stjórnarmanna sláandi Atvinnulíf Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Hrefna stýrir Attentus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump Volvo segir upp þrjú þúsund manns Fangelsisdómar yfir stjórnendum Volkswagen vegna útblásturshneykslis X-ið hans Musk virðist liggja niðri Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Hótar Evrópusambandinu og Apple háum tollum Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Gamla nafnið verður nýja nafnið, aftur Íslenskt sund í New York Apple skoðar að stýra snjalltækjum með hugsunum Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið Ríkið eignast hlut í Norwegian Hækkanir á Asíumörkuðum Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Bretar fyrstir til að semja við Trump Hyggja á opnun nýs Disney-skemmtigarðs í Abú Dabí Hætta við að reka OpenAI í hagnaðarskyni Buffett hættir sem forstjóri við lok árs Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Sekta TikTok um tæpa áttatíu milljarða Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Sjá meira