Íris, sem hefur þegar hafið störf hjá SFF, hefur verðmæta og yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af fjölbreyttum hliðum fjármálamarkaðar og atvinnulífinu, að því er segir í tilkynningu frá samtökunum.
Að undanförnu hefur Íris sinnt ráðgjöf við fyrirtæki, stofnanir og hið opinbera, auk þess að vera formaður Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki. Hún starfaði sem lögmaður hjá Arion banka í fjölbreyttum verkefnum á skrifstofu bankastjóra og lögfræðisviði í rúman áratug og sat í ýmsum nefndum og ráðum innan samstæðu bankans.
Íris hefur setið í stjórnum fjölda félaga, til að mynda hjá Verði tryggingum, Auðkenni, Leiguskjóli og Katla Fund, Global Equity, auk þess að hafa verið kjörin í tilnefningarnefnd Eikar fasteignafélags fyrr á þessu ári. Íris hefur einnig starfað hjá Fjármálaeftirlitinu sem lögfræðingur og upplýsingafulltrúi og setið í nefndum á vegum hins opinbera ásamt því að hafa unnið sem lögmaður um árabil.
Íris er menntaður lögfræðingur, með málflutningsréttindi og Fulbright og Cobb styrkþegi með LLM-gráðu frá University of Miami.
Hún tekur við starfinu af Jónu Björk Guðnadóttur yfirlögfræðingi sem hefur verið hjá SFF undanfarin sautján ár, en hún er að hefja störf hjá Landsbankanum.

Í tilkynningu frá SFF er haft eftir Írisi Björk að vegna reynslu sinnar úr fjármálageiranum búi hún yfir góðum grunni til að takast á við fjölbreytt verkefni samtakanna. „Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og spennt fyrir að takast á við þetta ábyrgðarmikla hlutverk. Ég hlakka til að vinna með öflugu teymi samtakanna, aðildarfyrirtækjunum, stjórnvöldum og öðrum hagsmunaaðilum.“
Þá segir Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri SFF, að það sé mikill fengur að fá Írisi til liðs við samhentan hóp starfsmanna hjá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu.
„Hún hefur verðmæta og yfirgripsmikla þekkingu á málaflokknum og hefur í gegnum störf sín skapað sér gott og traust orðspor. Yfirlögfræðingur SFF gegnir lykilhlutverki í starfsemi samtakanna og leiðir faglega vinnu er snýr að lögfræðilegum þáttum. Eitt meginhlutverk hans er að taka þátt í að móta trausta, skilvirka og heilbrigða umgjörð um fjármálaþjónustu á Íslandi og um leið koma á framfæri mikilvægi fjármálageirans fyrir íslenskt efnahagslíf.“