Handbolti

Silfrið niður­staðan fyrir Hannes og strákana hans

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes Jón Jonsson er þjálfari ALPLA HC Hard en liðið tapaði úrslitaeinvíginu.
Hannes Jón Jonsson er þjálfari ALPLA HC Hard en liðið tapaði úrslitaeinvíginu. Getty/Harald Dostal

Íslendingaliðið Alpla HC Hard varð að sætta sig við silfurverðlaunin eftir tap í úrslitaeinvíginu um austurríska meistaratitilinn í handbolta.

Alpla tapaði báðum leikjum sínum á móti UHK Krems í lokaúrslitunum en vinna þurfti tvo leiki til að verða meistari.

Hannes Jón Jónsson er þjálfari Alpla HC Hard liðsins.

Alpla varð deildarmeistari og með heimavallarrétt í úrslitunum en það dugði ekki.

UHK Krems vann fyrri leikinn með tveggja marka mun á heimavelli Alpla og fylgdi því eftir með tveggja marka sigri í kvöld, 25-23.

Krems var 12-11 yfir í hálfleik en Alpla komst yfir í seinni hálfleiknum.

Krems menn voru hinsvegar mun sterkari á lokakafla leiksins og tryggðu sér titilinn.

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir Alpla í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×