PWC – Traustsins verðir? Björn Thorsteinsson skrifar 12. júní 2025 12:01 Á heimasíðu eins stærstaendurskoðunarfyrirtækis landsins, PriceWaterHouseCooper (PWC) stendur m.a.:„Meginhlutverk endurskoðunar er að staðfesta áreiðanleika fjárhagslegra upplýsinga með því að láta í ljós óháð sérfræðiálit á þeim.“ Við „google leit“ stendur efst hvað PWC snertir: „PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki á sviði endurskoðunar, reikningsskila, fyrirtækjaráðgjafar, skatta- og lögfræðiráðgjafar.“ Hér á eftir koma þrjú dæmi varðandi vinnubrögð PWC sem sá um færslu bókhalds sem og sinnti endurskoðun á fjölskyldufélagi okkar sem bar upphaflega nafn afa míns, Björn Hallgrímsson ehf. en ber nafnið Lyfjablóm ehf í dag. Umrætt félag var á sínum tíma eitt stærsta eignarhaldsfélag landsins með mörg þúsund milljóna eignir en félagið hefur staðið í málaferlum sl.ár m.a. við db. fyrrum forsvarsmanns félagsins, Kristinn Björnsson og Þórð Má Jóhannesson, fyrrum forstjóra Gnúps fjárfestingarfélags sem og Stefán Bergsson, fyrrum endurskoðanda félagsins. Kristinn sat í stjórn félagsins ásamt þremur systrum sínum (þ.m.t.móður minni) en öll áttu þau jafnan hlut eða um 25% í félaginu hvert um sig. Dæmi 1: 2013 mætti Stefán Bergsson endurskoðandi í skýrslutöku hjá embætti skattrannsóknarstjóra og m.a. beðinn um að skýra 46 milljóna millifærslu frá aðila að nafni “Björn Hallgrímsson” inná reikning einkahlutafélags Kristins Björnssonar, Mercatura, sem var þá í 100% eigu Kristins. Þar svarar Stefán orðrétt eiðsvarinn:„…Hann fékk 46 millj.frá pabba sínum og hann lánar það inn í Mercatura.“ og bætir við: „…fjárhæðin var notuð til fjárfestinga í nafni Mercatura ehf. Kristinn gerði þetta lán upp við uppgjör og erfðaskipti á dánarbúi föður síns.“ Undirritaður er núverandi eigandi og forsvarsmaður fjölskyldufélagsins og hefur DK bókhaldskerfið sem PWC notaði við færslu bókhalds félagsins undir höndum. Þar kemur skýrt fram að umræddar 46 millj. voru ekki millifærðar af bankareikningi afa míns, Birni Hallgrímssyni, heldur hinu sameiginlega fjölskyldufélagi sem bar sama nafn, yfir á reikning einkahlutafélags Kristins. Jafnframt hafa fundist tölvupóstsamskipti milli Kristins og fyrrum viðskiptastjóra hans innan Glitnis, Birkis Kristinssonar, þar sem Kristinn segir m.a: „Ég þarf að biðja þig um greiða. Ég mun vera á síðasta degi í dag að greiða upp yfirdráttinn á reikningi Mercatura ehf uppá 46 milljónir. Viltu borga hann með millifærslu af reikningi Björn Hallgrímsson ehf…..þú verður að bjarga því að ég lendi ekki í neinum kostnaði vegna þessa.“ Þar sem fyrrgreindur Stefán endurskoðandi sá jafnframt um færslu bókhalds og endurskoðunar fyrir Kristinn Björnsson og einkahlutafélag hans Mercatura, veit hann auðvitað fullvel að umræddar 46 millj. króna komu ekki af reikningi afa Björns, heldur hins sameiginlega fjölskyldufélags sem bar sama nafn, inná reikning einkahlutafélags Kristins, Mercatura. Afi Björn lést 2005 og fyrrgreindur Stefán endurskoðandi sá um gerð erfðafjárskýrslu hans með Kristni og lauk skiptum dánarbúsins 2006. Þar var ekkert minnst á kröfu dánarbús afa Björns á hendur Kristni Björnssyni að upphæð 46 millj. og skuldin aldrei gerð upp við skipti á dánarbúi hans sem lauk 2006 eins og Stefán hélt fram í skýrslutöku hjá skattyfirvöldum. Móður minni og systrum hennar var því algjörlega ókunnugt um þennan fjárdrátt Kristins úr hinu sameiginlega fjölskyldufélagi. Árið 2022 skilar fyrrgreindur Stefán endurskoðandi greinargerð til héraðsdóms í dómsmáli Lyfjablóms vegna umræddrar 46 millj. millifærslu en minnist ekkert á þessa eiðsvörnu skýrslu hans hjá skattyfirvöldum að umrædd millifærsla hafi komið frá föður Kristins, sem Kristinn hafi svo gert upp við systur sínar við skipti á dánarbúi föður þeirra 2006, enda veit Stefán að bankareikningar Lyfjablóms voru meðal málsgagna sem sýndu skýrt að umrædd fjárhæð kom af bankareikning Lyfjablóms. Eftir 4 fyrirtökur í málinu kemur Stefán endurskoðandi skyndilega með allt aðrar skýringar með hvaða hætti fyrrgreindar 46 millj. eigi að hafa verið endurgreiddar Lyfjablóm sem ekki verða raktar hér en tekið skal fram að þær skýringar eru einnig rangar. Það er því ljóst að PWC hefur bókhaldsskýringar “á lager”, allt eftir því hvort starfsmenn þess séu eiðsvarnir í skýrslutökum hjá skattyfirvöldum eða leggja fram sönnungargögn fyrir dómstóla eða mæta sem vitni fyrir dóm. Dæmi 2: Fyrir héraðsdómi Reykjavíkur var PWC einnig beðið um að skýra liðlega 100 millj. úttekt af bankareikningum Lyfjablóms ehf. Stefán endurskoðandi lagði þá fram bókun sem dómsskjal þar sem segir að afi minn heitinn, Björn Hallgrímsson, sem ekki átti hlut í hinu sameiginlega fjölskyldufélagi, hafi selt hlutabréf í eigu Lyfjablóms í Skeljungi og Sjóvá fyrir um 100 millj.króna og lagt andvirðið inná eigin bankareikning. M.ö.o. afi Björn á að hafa stolið 100 millj.króna frá félaginu sem bar nafn hans á þessum tíma en var í eigu barna hans. Á engum tímapunkti upplýsti PWC stjórn fjölskyldufélagsins um þennan meinta 100 millj. fjárdrátt afa Björns úr félaginu. Nú hefur tekist að rekja umræddar hlutabréfasölur og afi Björn kom þar hvergi nærri heldur Kristinn Björnsson. DK bókhaldskerfi fjölskyldufélagsins, fært af PWC, segir hinsvegar 138 millj. króna hafa verið millifærðar frá Lyfjablóm inná persónulegan bankareikning afa Björns en á sama tíma þinglýsir Kristinn allsherjarumboði foreldra sinna hjá sýslumanninum á Selfossi sem veitir honum full yfirráð yfir öllum eignum þeirra, þ.m.t. bankareikningum. Rithönd foreldra Kristins (þ.e. afa Björns og Ömmu Sjafnar) eru rituð með sömu rithönd en vottur umboðsins, fyrrum undirmaður Kristins hjá Skeljungi (Kristinn var þá forstjóri Skeljungs en Lyfjablóm var þá meðal stærstu hluthafa), ber fyrir sig minnisleysi og man ekki eftir vottun sinni. Á þessum tíma lá amma Sjöfn með Alzheimer á lokastigi á sjúkrahúsi þar sem hún lést skömmu síðar, þannig að fyrrgreindur undirmaður Kristins hefði þá þurft að mæta uppá Landakot til að votta meinta undirritun ömmu minnar á umboðsskjalið en tekið skal fram að hún var hætt að þekkja fjölskyldu sína á þessum tíma. Sama ár og Kristinn þinglýsti fyrrgreindu allsherjarumboði foreldra sinna var hann rekinn sem forstjóri Skeljungs vegna fjárdráttar og gert að endurgreiða Skeljungi tugmilljóna vegna falsaðra reikninga tengdum endurbótum á heimili hans á Fjólugötu. Þar sem eiginkona hans var þá starfandi dómsmálaráðherra var málið þaggað niður og honum gert kleift að segja upp „að eigin ósk.“ Afi Björn lést 2005 og var dánarbúi hans lokað með gerð erfðafjárskýrslu 2006 og var sú skýrsla gerð af PWC með aðstoð Kristins. Skv.nýlegum gögnum voru hinsvegar persónulegir bankareikningar afa Björns í fullri notkun a.m.k. til 2010 með tugum millifærslna, þ.m.t. taldar milljóna greiðslur til PWC og Mörkin lögmannstofu sem er fyrrum lögmannstofa Lyfjablóms ehf. vegna húsaleigu Mercatura, einkahlutafélags Kristins. Í DK bókhaldskerfi fjölskyldufélagsins ritar PWC ítrekað „húsaleigu greiðslur v/Mercatura“ en tekið skal fram að Mercatura tengist ekki okkar sameiginlega fjölskyldufélagi enda í 100% eigu Kristins. M.ö.o. PWC er að fá greitt milljónir króna af bankareikningi afa Björns allt að 5 árum eftir andlát hans og fjórum árum eftir að PWC lauk skiptum á dánarbúi hans og ritar samviskusamlega í bókhaldskerfi hins sameiginlega fjölskyldufélags að aðrar milljóna greiðslur tengjast ekki rekstri Lyfjablóms , heldur rekstri Mercatura, einkahlutafélagi í fullri eigu Kristins Björnssonar, en gerir engar athugasemdir. Dæmi 3: Árið 2013 fundum við feðgar 800 millj. millifærslu gegnum bankareikninga Lyfjablóms en engar skýringar. PWC sagðist ekki hafa neinar upplýsingar um millifærsluna en myndi kanna málið. Stuttu síðar kallar Kristinn Björnsson systur sínar sem áttu 75% í félaginu á fund á heimili foreldra minna í Fossvogi. Þar mætir Kristinn með eiginkonu sinni, Sólveigu Pétursdóttur, ásamt fulltrúa PWC, Stefáni endurskoðanda, sem upplýsir að PWC hafi kannað þetta og að umrædd 800 millj. millifærsla hafi verið „bankamistök Glitnis banka“. Nánar tiltekið að rannsókn PWC hafi leitt í ljós að fyrir mistök hafi Glitnir lagt inn 800 millj. inná reikning fjölskyldufélagsins, en leiðrétt sama dag og millifært útaf bankareikning félagsins og því sé það rétt sem Kristinn hafi fullyrt að um “bankamistök” hafi verið að ræða. Stefán endurskoðandi kom svo sem vitni fyrir héraðsdóm 2019 og 2022 og staðfesti eiðsvarinn þessa skýringu Kristins Björnssonar að um bankamistök Glitnis hafi verið að ræða. DK bókhaldskerfi fjölskyldufélagsins, fært af PWC, segir allt aðra sögu. Þar ritar PWC að umrædd 800 millj.millifærsla hafi komið frá fjárfestingarfélaginu Gnúp og síðan ritar PWC orðrétt : „Glitnir skammtímalán greitt tilbaka“. Nú hafa fundist skjöl sem sýna að Kristinn Björnsson tók án vitundar systra sinna (sem áttu 75% hlut í félaginu og mynduðu meirihluta stjórnar þess) 800 millj. skammtímalán í Glitni en lagði fjármunina aldrei inn á reikninga félagsins heldur biðreikning í Glitni. Þaðan fara fjármunirnir inná vörslureikning Kaupþings banka og þaðan í vasa fyrrum forstjóra fjárfestingarfélagsins Gnúps, Þórðar Más Jóhannessonar. M.ö.o 800 millj. króna ólögmætt skammtímalán sem Kristinn tekur í nafni hins sameiginlega fjölskyldufélags rennur í vasa þáverandi forstjóra Gnúps og nokkrum dögum síðar millifærir forstjóri Gnúps, Þórður Már Jóhannesson, 800 millj. af bankareikning Gnúps inná reikninga fjölskyldufélags okkar til að greiða fyrrgreint skammtímalán. Fyrir liggur að fjárfestingarfélagið Gnúpur fékk engin verðmæti á móti er það greiddi upp hið ólögmæta skammtímalán sem Kristinn hafði tekið stuttu áður í nafni hins sameiginlega fjölskyldufélags. Tengist þetta hinu svokallaða Gnúpsmáli sem verður ekki rakið hér frekar enda málið komið í lögreglurannsókn. M.ö.o. Stefán endurskoðandi ritar í DK bókhaldskerfi fjölskyldufélags okkar að umræddar 800 millj. hafi komið frá Gnúp hf. og að fjármunirnir hafi verið notaðir til að greiða upp ólögmætt skammtímalán Lyfjablóms í Glitni banka Stefán endurskoðandi mætir hinsvegar síðar á heimili foreldra minna á hluthafafund fjölskyldufélags okkar sem og fyrir héraðsdóm sem vitni þar sem hann segir að umrædd 800 millj.millifærsla hafi verið “bankamistök Glitnis” og “engar aðrar upplýsingar” hafi verið PWC aðgengilegar varðandi umþrætta millifærslu. Undirritaður mun fjalla frekar um vinnubrögð PWC á næstunni en lætur staðar numið hér að sinni. Höfundur er eigandi og forsvarsmaður Lyfjablóms (áður Björn Hallgrímsson ehf). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málaferli vegna Lyfjablóms ehf. Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun