Katla María Þórðardóttir kom FH yfir á 11. mínútu eftir frábærlega útfærða aukaspyrnu. Birna Kristín Björnsdóttir tók spyrnuna, á miðjum vallarhelmingi Þórs/KA, og sendi með jörðinni beint á Kötlu Maríu sem hafði einhvern veginn náð að losa sig frá vörninni og skoraði úr teignum. Fyrsta mark Keflvíkingsins fyrir FH eftir komuna frá Örebro í Svíþjóð í vetur.
Heimakonur voru hins vegar bara tíu mínútur að jafna metin en það gerði Karen María Sigurgeirsdóttir með frábæru skoti fyrir utan vítateigsbogann sem Sandra Sigurðardóttir réði ekki við. Staðan var 1-1 í hálfleik.
FH-ingar höfðu viljað vítaspyrnu í fyrri hálfleik en þeim varð svo að ósk sinni snemma í seinni hálfleik. Agnes Birta Stefánsdóttir braut þá á Valgerði Ósk Valsdóttur rétt innan teigs og Maya Hansen skoraði af öryggi úr vítinu.
Elísa Lana Sigurjónsdóttir innsiglaði svo 3-1 sigurinn með frábæru einstaklingsframtaki, um fimm mínútum fyrir leikslok. Hún óð með boltann frá miðlínu og að vítateig heimakvenna þar sem hún smellti boltanum svo í vinstra hornið. Hennar fimmta mark fyrir FH í sumar.
FH, ÍBV og Valur eru nú komin í undanúrslit Mjólkurbikarsins, sem spiluð verða í lok júlí, og fjórða liðið bætist svo við í kvöld þegar Breiðablik og HK mætast.