Vísir hefur tekið saman fjölda fjallkvenna sem fluttu ávarp á 17. júní í ár frá hinum ýmsu sveitarfélögum og bæjum landsins. Stuðst var við vefsíður sveitarfélaga og samfélagsmiðlafærslur.
Sem fyrr virðast svörtu og bláu kyrtlarnir vinsælustu þjóðbúningarnir meðal fjallkvennanna, en auk þeirra mátti sjá skautbúninga og hvítan kyrtil. Þá eru margar hverjar með krullur í hári.
Reykjavík
Katrín Halldóra Sigurðardóttir leikkona var fjallkonan í Reykjavík í ár. Hún klæddist hinum víðfræga skautbúningi sem er í vörslu Árbæjarsafns. Við hann er stokkbelti með vínviðarmunstri úr silfri og brjóstnæla í stíl.

Katrín flutti ávarp eftir Þórdísi Helgadóttur rithöfund og skáld.
Vorið kemur og heimur hlýnar á Seltjarnarnesi
Anna Björg Erlingsdóttir var fjallkona Seltirninga í ár. Hún er flestum bæjarbúum kunn enda borin og barnfædd á Seltjarnarnesi.
Hún var í fallegum kyrtilkjól frá Þjóðdansafélaginu með sprotabelti, brjóstnælu og fald á höfði.

Valgeir Guðjónsson samdi lag út frá ljóðinu Vikivaki eftir Jóhannes úr Kötlum sem Íslendingar þekkja vel. Ljóðið er því Íslendingum afar kært.
Sunnan yfir sæinn breiða,
sumarylinn vindar leiða.
Draumalandið himinheiða
hlær - og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar, hjartað mitt!
Fótboltafyrirliði í Kópavogi
Agla María Albertsdóttir, fyrirliði knattspyrnuliðs Breiðabliks og landsliðskona, var fjallkona Kópavogs í ár.

Hún sagði það mikinn heiður og gaman að hafa verið fjallkona Kópavogs.
Fjörðurinn minn í Hafnarfirði
Í Hafnarfirði var það leikkonan, leikstjórinn, leikskáldið og uppistandarinn Björk Jakobsdóttir sem brá sér í hlutverk fjallkonunnar í ár.
Hún flutti ljóðið Fjörðurinn minn eftir Hafnfirðingin Egil Þórðarson þegar hún steig á svið á Thorsplani.

„Fjörðurinn er alltaf fjölskylda mín; fjallkonu hreiður er sól á þig skín, breiðir út faðminn á bjartsýnisstund, brosir svo svellur oss móður í lund.“
„Hér búa álfar og yndisleg börn, að ærslast í skemmtun við lækinn og tjörn, ég vil þeim skýla með verndandi væng, sem væru þau pökkuð í hlýlega sæng.“
Ljóðið í heild sinni.
Breiðdælingaóður í Breiðdal
Í Fjarðabyggð var fjallkonan Gróa Jóhannsdóttir frá Hlíðarenda í Breiðdal. Hátíðarhöld sveitarfélagsins voru haldin í Breiðdal og voru vel sótt og afar vel heppnuð að sögn bæjarins.
Fjallkonan flutti ljóðið Breiðdælingaóður.

Nýstúdent með ávarp frá eigin brjósti
Löng hefð er fyrir því á Akureyri að fjallkonan sé nýstúdent sem flytur ávarp frá eigin brjósti. Kolfinna Líndal Arnarsdóttir, nýstúdent frá VMA var fjallkonan í ár og kom hún fram á hátíðardagskrá í Lystigarðinum.


Leikari og söngnemi í Mosfellsbæ
Fjallkonan í Mosfellsbæ er Natalía Erla Arnórsdóttir, borinn og barnsfæddur Mosfellingur, félagi í Leikfélagi Mosfellssveitar og stundar söngnám í söngskóla Sigurðar Demetz.
Þekkir þú fjallkonu sem hefur ekki ratað í myndaveisluna? Sendu okkur mynd eða ábendingu á ritstjorn@visir.is

Móðurást í Garðabæ
Júlía Káradóttir var fjallkona Garðabæjar í ár. Hún klæddist skautbúningi í eigu Kvenfélags Garðabæjar.
Hún las ljóðið Móðurást eftir Jónas Hallgrímsson.
Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar, en komið er él,
snjóskýin þjóta svo ótt og ótt;
auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.

Kvenfélag Garðabæjar hefur annast hlut fjallkonu við hátíðarhöld í Garðabæ á 17. júní frá 1980.
Skautbúningur Kvenfélagsins er fallegur og er útsaumurinn eftir Elísabetu Waage. Nær undantekningalaust hefur Kvenfélagskona verið í hlutverki fjallkonunnar og flutt ljóð við hátíðarhöldin.
Selfoss
Árný Ilse Árnadóttir var fjallkona Selfoss í ár. Búningurinn er í eigu Kvenfélags Selfoss.
„Glæsilega fjallkonan okkar“ sagði Kvenfélagið á samfélagsmiðlum.

Suðurnesjabær
Í Suðurnesjabæ var það Heba Lind Guðmundsdóttir sem fór með hlutverk fjallkonunnar. Hún er nýstúdent og flutti ljóð eftir Ingibjörgu Sigurðardóttur.

Vestmanneyjar
Anna Ester Óttarsdóttir var fjallkonan í Vestmanneyjum í ár. Hún flutti hátíðarljóð á dagskrá bæjarins fyrir hádegi.
Hella
Fjölmenn hátíðarhöld voru á Hellu þar sem dagskráin byrjaði við dvalarheimilið Lund. Fjallkonan í ár var Therese Sundberg, sem flutti ljóð.

Rangárþing eystra
Sautjándi júní var víða haldinn hátíðlegur í Rangárþingi eystra, þar sem finna mátti minnst þrjár fjallkonur.
Á Hvolsvelli var það Sjöfn Lovísa Bahner Jónsdóttir sem flutti ljóð á á hátíðardagskránni á miðbæjartúninu við Hvolinn.
Á Goðalandi, Njálsbúð og Heimalandi stóðu kvenfélögin Eygló, Bergþóra og Hallgerður fyrir dagskrá þar sem boðið var upp á kaffi, kökur og dagurinn haldinn hátíðlegur.
Fjallkona á hátíðarhöldunum í Goðalandi í Fljótshlíð var Helena Dröfn Kristjánsdóttir og á Heimalandi undir Eyjafjöllum var fjallkonan Sandra Líf.



Snæfellsbær
Fjallkona Snæfellsbæjar árið 2025 var Eirný Svana Helgadóttir. Hún flutti ávarp á hátíðardagskrá bæjarins í Ólafsvík.

Jónas Hallgrímsson lesinn í Dalabyggð
Fjallkona Dalabyggðar í ár var Dagný Sara Viðarsdóttir nýstúdent. Hún flutti ljóðið Dalvísu eftir Jónas Hallgrímsson með glæsibrag.
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!

Laugarvatn
Ásta Rós Rúnarsdóttir var fjallkonan á Laugarvatni í ár. Hún klæddist þjóðbúningi í eigu Kvenfélags Laugdæla. Hún flutti ljóðið Ísland eftir Jón Thoroddsen.

Hátíðarhöldin eru samvinnuverkefni Kvenfélags Laugdæla, Ungmennafélags Laugdæla, Lions á Laugarvatni og Planet Laugarvatn. Skemmtiatriði fóru fram í íþróttahúsinu vegna veðurs. Í framhaldi þeirra var svo vöfflukaffi á vegum Kvenfélagsins í Héraðsskólanum á Laugarvatni.