Innherji

Að fylgja eftir sann­færingu sinni og til­vistar­kreppa Fram­sóknar í borginni

Ráðgjafinn skrifar
Ný könnun á fylgi flokkanna í borginni er athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn eina ferðina með yfir þrjátíu prósenta fylgi og virðist hafa fest sig í sessi sem langstærsti flokkurinn í borginni. Samfylkingin er sömuleiðis á ágætu róli með ríflega fjórðungsfylgi og sækir í sig veðrið.
Ný könnun á fylgi flokkanna í borginni er athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn eina ferðina með yfir þrjátíu prósenta fylgi og virðist hafa fest sig í sessi sem langstærsti flokkurinn í borginni. Samfylkingin er sömuleiðis á ágætu róli með ríflega fjórðungsfylgi og sækir í sig veðrið.

Yfirtökutilboð forstjóra og stjórnarformanns Play er jákvætt skref fyrir íslenskan markað, en yfirtökutilboð hafa færst í aukana á markaðnum eftir áralanga pásu eftir fjármálahrunið. Nægir þar að nefna yfirtökutilboð i Skeljung (núna SKEL) og Eik (í tvígang), auk yfirtöku og afskráningu Origo.

Auðvitað er það þroskamerki á markaði þegar fjárfestar grípa tækifærið til að fylgja eftir sannfæringu sinni. Ef hluthafar telja virði fjárfestingar sinnar ekki njóta sannmælis á markaði verður bilið milli verðlagningar og virðis að þeirra mati á einhverjum tíma slíkt, að kostir yfirtökutilboðs liggja í augum uppi.

Sömuleiðis er áhugavert að velta fyrir sér þróun á hlutabréfaverði eftir yfirtökutilboð. Í tilviki Skeljungs og Eikar rauk verð félaganna upp og strax ljóst að hluthafar yrðu tregir til að selja inn í tilboðin. Í tilviki Play er því öfugt farið og gengi bréfanna um tíu prósent lægra undanfarna daga en tilboðsgengi.

Ef við trúum á skilvirka verðlagningu á markaði er því langlíklegast að forsvarsmönnum tilboðsins verði að ósk sinni. Þeir nái yfir níutíu prósenta þröskuldinn og brátt verði Play óskráð félag. Spennandi verður að fylgjast með vegferðinni í framhaldi.

Týndur milli turna

Ný könnun á fylgi flokkanna í borginni er athyglisverð fyrir margra hluta sakir. Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn eina ferðina með yfir þrjátíu prósenta fylgi og virðist hafa fest sig í sessi sem langstærsti flokkurinn í borginni. Samfylkingin er sömuleiðis á ágætu róli með ríflega fjórðungsfylgi og sækir í sig veðrið.

Margt getur auðvitað breyst fram að kosningum. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík á það til að vera sjálfum sér verstur og gæti enn eina ferðina fallið í þá gryfju að éta sjálfan sig að innan með fylkingabrölti. Líkur á því hljóta þó að vera minni en oft áður, enda nýtur flokkurinn allt að því tvöfalt meira fylgis í borgarstjórn en hann mælist með í Reykjavíkurkjördæmunum til Alþingis.

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík á það til að vera sjálfum sér verstur og gæti enn eina ferðina fallið í þá gryfju að éta sjálfan sig að innan með fylkingabrölti.

Augljóst er að Samfylkingin sækir fylgisaukningu sína til persónulegra vinsælda Kristrúnar Frostadóttur og vasklegrar framgöngu Jóhanns Páls Jóhannssonar upp á síðkastið. Hætt er við að úr kvarnist þegar nær dregur kosningum og kastljósið beinist í auknum mæli að afrekaskrá og mannvali flokksins í borginni.

Meirihlutinn hangir á horriminni samkvæmt könnuninni, með meirihluta í borgarstjórn en minnihluta atkvæða. Framsóknarflokkurinn mælist úti.

Fáir eiga í meiri tilvistarkreppu en Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar sem mælist með þrjú prósent fylgi. Einar virðist ráðvilltur og hefur gripið til þess ráðs að ljósrita mál sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt ítrekað fram – og Einar hafnaði meira að segja í sinni borgarstjóratíð!

Þetta er sérkennileg strategía. Einar hlýtur að vilja fella meirihlutann. Hann mun ósennilega spila rullu í því með reyna að vera áfengislaus útgáfa af Sjálfstæðisflokknum. Tækifærið hlýtur fremur að felast í hefðbundnari framsóknarmennsku. Sækja að Samfylkingunni frá miðju og til vinstri.

Nú er sumarfrí framundan og Einar hefur því tækifæri til að hugsa sinn gang. Kannski kemur hann endurnærður og nær vopnum sínum. Annars er dauðafæri fyrir sókn inn á miðjuna í borginni. Kannski að Miðflokkurinn mæti til leiks, steli fyrirsögnunum á miðjunni og geri Einar endanlega að neðanmálsgrein?


Ráðgjafinn er innanbúðarmaður sem tekur púlsinn á stöðunni innan stjórnmála og atvinnulífs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×