„Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 30. júní 2025 07:02 Siggi Kjartan og Sylvía Lovetank giftu sig með stæl á Ibiza eyjunni fyrr í júní. Aðsend „Sigga langaði í sveitabrúðkaup og mig langaði að vera í fallegum hælum og skvísa yfir mig svo við vorum ekki alveg á sömu blaðsíðu á fyrsta degi. En svo fórum við til Ibiza í fyrsta skipti í september í fyrra og urðum ástfangin af eyjunni,“ segir búningahönnuðurinn og myndlistarkonan Sylvía Lovetank sem gekk að eiga sinn heittelskaða Sigga Kjartan leikstjóra og boozbónda í brúðkaupi á Ibiza á dögunum. Blaðamaður ræddi við Sylvíu um ævintýrið.
Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Elsku Siggi Kjartan bað mín með mjög óhefðbundnum hætti eins og allt sem hann gerir þann 24.08.2023. Siggi Kjartan og Sylvía Lovetank glæsileg brúðhjón á Ibiza.Aðsend Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn? Við ætluðum að gifta okkur heima þar sem allt okkar nánasta fólk gæti séð sér fært að koma saman og fagna ástinni en svo missti ég elsku Rósu frænku, móðursystur mína, í apríl í fyrra og í framhaldi af því sannfærði ég Sigga um að leggja land undir fót. Vissuð þið strax að þið vilduð gifta ykkur erlendis og er Ibiza í uppáhaldi hjá ykkur? Sigga langaði í sveitabrúðkaup sem er æði og mig langaði að vera í fallegum hælum og skvísa yfir mig svo við vorum ekki alveg á sömu blaðsíðu á fyrsta degi. En svo fórum við til Ibiza í fyrsta skipti í september í fyrra með yndislegum vinum og urðum ástfangin af eyjunni. Tulum í Mexíkó er uppáhalds staður okkar SK (Sigga Kjartans) og Ibiza minnti okkur svo ótrúlega á Tulum svo já Ibiza er nú svo sannarlega í uppáhaldi. Við fundum stað á netinu sem heitir Nikki Beach en við höfðum ekki komið þangað. Við settum okkur í samband og þau samskipti voru svona „island-time“ samskipti en eins og allir vita gerast góðir hlutir hægt og þau voru frábær og staðurinn fullkominn fyrir brúðkaupið okkar. Nú höfum við SK farið tvisvar til Ibiza og höfum lært að það gerast bara góðir hlutir á þessari mögnuðu eyju. Góðir hlutir gerast hægt á eyjunni og brúðkaupið var fullkomið!Aðsend Hvernig var brúðkaupsdagurinn? Dagurinn var draumi líkastur, í faðmi fjölskyldu og vina. Flest af okkar besta fólki saman komið á þennan ótrúlega fallega stað að njóta lífsins saman með okkur, hlæja, gráta og faðmast. Dóttir söng, sonur fór með ljóð, foreldrar, bestu frænkur og vinir héldu ræður og sungu lög. Ég held ég hafi aldrei grátið jafn mikið af gleði og upplifað jafn margar hráar og fallegar tilfinningar á skömmum tíma. Dagurinn hefði bara ekki getað verið betri. Dagurinn hefði að sögn Sylvíu ekki getað verið betri.Aðsend Voruð þið með nokkra daga af fjöri í tengslum við brúðkaupið? Allir dagar voru fullir af lífi og fjöri, fjölskylda og vinir komu inn og út á sitthvorum tímanum, sumir á undan okkur og aðrir voru lengur en við, alltaf fullt hús af fólki og gleði. Við söfnuðumst saman í fordrykk daginn fyrir brúðkaupið okkar á yndislegum rooftop bar þegar flestir voru komnir og skáluðum fyrir því að við værum öll þarna saman komin alla leið til Ibiza. Fyrri partur brúðkaupsdagsins var tekinn í húsinu sem við gistum í. Við vöknuðum og tókum daginn saman með fjölskyldunni. Þóra frænka greiddi skvísum og við fórum í förðun. Glæsilegar mæðgur Eldey og Sylvía að undirbúa sig fyrir brúðkaupið.Aðsend Fólk æddi inn og út og spreyjaði gleði út í loftið og svo röltum við yfir á Nikki Beach sem var við hliðina á húsinu okkar og hótelinu sem flestir gistu á. Allt ótrúlega einfalt og geggjað, dagurinn var fullur af ást og gleði frá morgni og langt fram á nótt. Daginn eftir brúðkaupið fórum við svo í bátsferð með vinum sem gátu stigið ölduna og dansað á sama tíma og svo beint á geggjaðan klúbb með sjóriðu og dönsuðum saman inn í nóttina með plötusnúðinum Frank Mercier. Það var stanslaust stuð allan tímann sem hópurinn var saman á Ibiza.Aðsend Voruð þið sammála í skipulaginu? Siggi var framkvæmdastjóri í öllu sem við kom þessu stórkostlega brúðkaupi og sá um allt sem snéri að því að bóka, græja og gera. Ég var spurð nokkrum sinnum hver væri „my wedding planner“ og það var sko hann. Hann á svo sannarlega hrós skilið að hafa náð að safna okkur öllum saman á lítið svæði en því fylgdi svo mikil nánd. Allir saman, gaman allan tímann. En hvað skipulag varðar þá vorum við alltaf sammála í grunninn. Við vorum með áherslur á mismunandi stöðum og fengum því bæði að ráða för. Siggi Kjartan og Sylvía voru í grunninn sammála og leyfðu hvort öðru að njóta sín í botn.Aðsend Hvaðan sóttuð þið innblástur? Innblásturinn kom frá Tulum í Mexíkó í mat, drykk, blómum og litapallettu enda erum við mega aðdáendur. Hjónin sóttu innblástur til Tulum.Aðsend Hvað stendur upp úr? Samveran með öllu okkar yndislega fólki sem hafði tök á því að koma og vera með okkur. Allar fallegu ræðurnar, ljóðin, söngvarnir og allar fallegu kveðjurnar frá þeim sem gátu ekki verið með okkur. Einnig hvað allir voru boðnir og búnir að leggja hönd á plóg til að gera daginn okkar yndislegan frá A-Ö. Að finna svona mikinn kærleik eru mikil forréttindi og er ég ólýsanlega þakklát. Sylvía ásamt syninum Andreasi Halldóri og dótturinni Eldeyju Jóhönnu.Aðsend Voru einhver skemmtiatriði eða veislustjórar? Við vorum með bestu veislustjóra í heimi. Hina einu sönnu Helgu Lilju Helicopter fatahönnuð- og koddaslags drottningu og hinn eina sanna Ragnar Jón blaða- og tónlistarmann. Veislustjórarnir slóu í gegn.Aðsend Hvað voru margir gestir? Við buðum rúmlega hundrað manns og héldum að við værum heppin ef kæmu þrjátíu í ljósi kílómetrafjölda en ótrúlegt en satt fengum við yfir hundrað elskur að fagna með okkur og er ég ennþá í losti yfir því. Takk! Sylvía svífur um á hamingjuskýi eftir brúðkaupið og samveruna með hennar besta fólki.Aðsend Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Það sem kom okkur sjálfsagt mest á óvart var að finna þennan mikla samhug og kærleika úr öllum áttum, hvað voru margir til í að leggja á sig tvö flug, púsluspil og alls kyns vesen til að vera með okkur. Ástin og væntumþykjan var svo sannarlega í loftinu.Aðsend Hvernig gekk að velja kjólinn? Varstu með fataskipti? Ég var svo sultuslök allan tímann í undirbúningnum, enda með SK á kantinum að græja allt og sjá um öll samskipti. Við erum bæði alltaf ótrúlega upptekin í vinnu svo ég hafði engan tíma til að ofhugsa eitt né neitt í raun. Ég var bara í Basel að vinna í Eurovision rétt fyrir brottför en er ekki óvön því að þurfa hrista fram lúkk hér og þar í verkefnum með litlum fyrirvara svo ég fór ekkert að ofanda fyrr en korter í brúðkaup, en þá var ég ekki ennþá kominn með kjól. Það var smá brekka. Ég var með rosa flott Pinterest mood board sem ég gat því miður ekki klætt mig. Þannig að sem svo oft áður fann mín besta kona Heba sem er með Svart Studio efnið sem mig langaði í og klæðskerar lífs míns þær Lísa Hjaltested og Birna Sigurjónsdóttir saumuðu fyrir mig kjólinn og korsettuna sem mig langaði í á tíu mínútum. Að því loknu settist ég svo niður nokkur kvöld og skreytti með perlum og steinum sem er mín nýja uppáhalds hugleiðsla. Kjóllinn kom heim og saman korter í brúðkaup og heppnaðist fullkomlega. Hér er Sylvía ásamt foreldrum hennar og dóttur.Aðsend Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? 100 prósent. Engar hugmyndir eru asnalegar, ekki gera neitt eins og það „á að vera“ eða er vanalega gert í brúðkaupi heldur bara nákvæmlega eins og ykkur langar að hafa það. Ég vildi hamborgara og SK eitthvað annað svo við gerðum bæði, ekkert þarf að passa saman eða meika sens. Þetta er dagurinn ykkar og hann á að vera ykkar fyrir ykkur og allir elska ykkur. Við fengum þá góðu áminningu að treysta útkomunni og vera í flæði því það er alltaf besta leiðin. Eina leiðin. Sylvía segir lang best að treysta ferlinu, vera í flæði og njóta þegar það kemur að brúðkaupinu.Aðsend Þetta var stress inn á milli hjá okkur vissulega ekki misskilja mig en stressið var óþarft í raun því allt kom þetta heim og saman með ótrúlegum samhug þegar öllu var á botninn hvolft. Allt sem fór öðruvísi en hafði verið planað gerði það bara enn skemmtilegra. Hér má sjá fleiri skemmtilegar myndir frá þessum ævintýraríka degi á Ibiza: Nóg af knúsum!Aðsend Þvílíkar ofurskvísur! Sara Nassim, Eva Katrín, Sandra Barilli og Thelma Torfa.Aðsend Verið að gera og græja!Aðsend Falleg fjölskylda í fjöri.Aðsend Gleðitár og ást í loftinu!Aðsend Eldey söng fyrir foreldra sína í brúðkaupinu.Aðsend Ræður og knús!Aðsend Brúðguminn skellti í pósu.Aðsend Hvítir skór og glamúr.Aðsend Veislustjórarnir ásamt brúðhjónunum.Aðsend Athöfnin var í guðdómlegu umhverfi.Aðsend Sylvía og Siggi voru umkringd þeirra allra besta fólki.Aðsend Risa knús.Aðsend Glæsilegt strandarbrúðkaup!Aðsend Hringarnir settir upp.Aðsend Tengd saman með blómum.Aðsend Brúðhjónin svífa um á bleiku skýi eftir brúðkaupið. Hælarnir af og dansað á tánum!Aðsend Glæsileg hjón á ströndinni á Ibiza.Aðsend Stórglæsileg öll! Sylvía ásamt börnunum. Aðsend
Brúðkaup Íslendingar erlendis Ástin og lífið Tíska og hönnun Mest lesið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Lífið Glatkistunni lokað Menning „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Myndaveisla frá Hafnarfirði - Bylgjulestin 2025 Lífið samstarf Grindavík sigursæl erlendis Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ „Það eru smá blendnar tilfinningar að vera farin“ Travolta klæddi sig óvænt upp sem Danny Zuko Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Skordýrabrúðkaup í Laugardalslaug Krakkatían: Leikhópurinn Lotta, fótboltamót og sumarsólstöður Sonur Rögnu og Árna fæddur Einn með fyrsta vinning og vann tæpar 54 milljónir Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og talin myndfríðust Fréttatía vikunnar: Leiðtogafundur, Hollywood-stjarna og umdeilt brúðkaup Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Vægar viðreynslur en engir pervertar Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Kyana og Viktor giftu sig undir berum himni Beckham á spítala Albert og Guðlaug saman í fríi á Ibiza Byggir á viðskiptamódeli bandarískrar trúboðsstöðvar Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Sjá meira