Ef Veðurstofan spáði vitlausu veðri í 40 ár, væri það bara í lagi? Björn Ólafsson skrifar 3. júlí 2025 08:02 Við hrun Sovétríkjanna, urðu til svo kallaðir „ólígarkar“ í Rússlandi. Viðskiptamenn, (mafíuósar), nýttu sér óreiðuna sem myndaðist, klíku, mútur og allskyns löglegar og ólögleiðar leiðir, til að komast yfir olíu-og gasauðlindir Rússlands. Þessir kallar urðu moldríkir auðjöfrar á einkavæðingu náttúruauðlinda landsins á kostnað alþýðunnar nánast á einni nóttu. Hér á landi, eru „ólíugarkar“ okkar, örfáar fjölskyldur sem hafa auðgast ævintýrlega á skömmum tíma. Auður þeirra hefur orðið til vegna „einka“ aðgangs þeirra að sjávarauðlindum þjóðarinnar sem stjórnvöld færðu þeim. Við köllum okkar „ólígarka“; kvótakónga. Þetta er fólk hefur ekki gert neitt ólöglegt, einfaldlega náð að nýta sér kerfið vel. Kerfi sem löggjafinn hannaði og skipulagði. Við þurftum enga allsherjar upplausn til að koma sjávarauðlindum þjóðarinnar á fárra hendur; Misvitrir pólitískusar dugðu til. Og, þeir komu kerfinu á í nafni ofveiði. Sem sagan sýnir að var eitt allsherjar „skam“.Allar fullyrðingar um ofveiði hafa reynst bull. Þorskstofninn er t.d. ekkert stærri nú en áður en kerfið var sett á. Aflinn var samt amk 50% meiri en í dag. Afhverju skyldi það vera? Lá eitthvað annað að baki kvótasetningu en það að sporna gegn ofveiði? Afhverju er er þorskaflinn ekki meiri eftir rúmlega 40 ára ráðgjöf Hafró? Um 200 þús tonn sem áður var nær 400 þús tonn áratugum saman. Fjármagn flæðir úr landi Þeir sem mest hafa grætt á kvótakerfinu eru milljarðamæringar á íslenska vísu. Það sem meira er, þeim hefur tekist að fara með ómælt fjármagn úr landi, sem þeir nýta í eigin þágu. Þetta er staðreynd sem lítið er fjallað um. Í den þegar ég fór erlendis til að gera fisksölusamninga, þá var alltaf samið um hversu mikið ætti að gefa upp og senda heim, og svo hvað ætti að vera eftir úti. Þá var fisksala ekki í höndum útgerðar- og fiskvinnslu, heldur sérstakra útflutningsaðila. Nú hafa stæstu kvótakóngarnir alla þræði í hendi sér; útgerð, vinnslu og sölu, og í lófa lagið að haga bókhaldinu eftir þörfum eða svo til. Og, það er allt samkvæmt leikreglum sem stjórnvöld hafa sett. Mikill gróði af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar streymir úr landi. Í mínum huga er það algjör tímaeyðsla að rífast endalaust um kvótakerfið. Vandséð að það verði gerðar meiriháttar breytingar á því. Þingheimur snarruglast við það eitt að ræða gjöld af einkaleyfi þeirra sem nýta sjávarauðlindir okkar. Það þarf að skoða hvernig gefið er; hver heildar veiðiráðgjöfin er og afhverju. Áratugum saman hafa stjórnvöld sýnt algjört tómlæti á meðan ríkisstofnun er leyft að ráðskast með sjávarauðlindir landsmanna, ábyrgðarlaust. Ríkisstjórn eftir ríkisstjórn hefur vanrækt skyldu sína. Aðaltilgangur fiskveiðistjórnunarkerfisins var að byggja upp nytjastofna, svo þeir gæfu amk sama og eða meira af sér en áður en kerfið var sett á. Það er kallað „sjálfbærni“. Það hefur algjörlega mistekist. Um það verður ekki deilt. Helstu nytjastofnar eru að gefa minna af sér en áður. Verðmætir stofnar hafa hrunið sökum rangra ráðgjafar og vistkerfi sjávar hér við land er mun verr á sig komið en fyrr. Sagan lýgur ekki, staðreyndir tala sínu máli. Allar tölulegar upplýsingar staðfesta árangursleysið, ég hef áður birt ýmsar tölur úr skýrslum Hafró, sem staðfesta mál mitt. Ráðamenn hafa horft upp á það gagnrýnislaust, ekki lyft litla fingri til að sinna eftirlitsskyldu sinni. Það er óþolandi fyrir landsmenn, að ekki sé betur hugað að auðlindum okkar. Allar helstu kenningar Hafró hafa verið afsannaðar – staðreynd. Hafró er tíðrætt um að umhverfisbreytingar séu stóri þátturinn í lélegum árangri. Engin getur með vissu sannreynt hversu mikilar umhverfisbreytingarnar hafa verið umfram náttúrulegar sveiflur. En það liggur fyrir, að dapur árangur Hafró varðandi ráðgjöf til stjórnvalda, á sér rætur löngu áður en farið var að tala um umhverfisbreytingar. Eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar er að gerð verði allsherjar úttekt á starfsemi Hafró. Það er löngu tímabært. Það ætti að vera krafa landsmanna, eigenda sjávarauðlindana að sú úttekt fari fram. Það eru gífurlegir hagsmunir í húfi fyrir þjóðina. Á tímum gífurlegra tækniframfara situr Hafró eftir með aðferðir til stofnstærðarmælinga sem ekki hafa verið uppfærðar á tímum mikilla tækniframfara. Til að meta stærðir fiskistofna hefur stofnunin í grunninn notað sömu aðferð í rúm 40 ár. Gróflega hefur stofnunin þurft að gera leiðréttingar á stofnstærðarmati þorsks einu sinni á áratug, sem nemur 300-500 þús tonnum. Ein af grundvallar kenningum Hafró um stækkun veiðistofna, er sú að því stærri sem hrygningarstofn er, því meiri nýliðun verði í stofninum. Þetta er kenning sem Hafró hefur unnið eftir áratugum saman. Þessi kenning hefur reynst kolröng, ekkert samband er milli stærð hrygningarstofns og nýliðunar. Í öllum stofnstæðrarmælingum og úrteikningum, gefur Hafró sér að náttúrlegt dánarhlutfall sé 0,2. Það eigi við um alla stofna og öll aldurstímabil. Þessi stuðull er rangur, og skekkir alla útreikninga við stofnstærðarmælingar. Það er ekki hægt að ganga út frá að náttúrulegur dánarstuðull, sé einver fasti eins og Hafró gerir. Stofnstærðir eru reiknaðar út frá fiski 3ja ára og eldri. Einfaldlega vegna þess að allt of lítið er vitað um ástand og stærðir stofna á fyrstu 2-3 árum æviskeiðsins. Hér er um grundvallarmál þegar stærð nytjastofna er fundin út. Eitt umdeildasta atriðið við aðferðarfræði Hafró, er að í hana skortir vistfræðilega nálgun. Ráðgjöfin þarf að taka tillit til áhrifa veiða viðkomandi stofns á vistkerfið í heild, en ráðgjöf Hafró hefur verið einskorðuð við hvern fiskistofn fyrir sig án tillits til heildaráhrifa. Þetta á t.d. við loðnuráðgjöfina, en loðnan mikilvægasta fisktegdund vistkerfisins við Ísland. Vöntun á loðnu í vistkerfið getur leitt til algjörs hruns nytjastofna, þar sem engin tegund kemur í stað loðnu. Ráðgjöf Hafró hefur leitt til hruns loðnustofnsins, staðreynd sem stofnunin gengst ekki við þrátt fyrir viðvarandi loðnubrest. Þjóðin á skilið að stjórnvöld ræki nú skyldu sína og láti fara fram faglega úttekt á ráðgjöf Hafró, sem hefur í yfir 40 ár verið eins og ósnertanlegt ríki í ríkinu. Höfundur er útgerðartæknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar