Enski boltinn

Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfir­lýsingu vegna Jota

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diogo Jota þakkar stuðningsmönnum Liverpool fyrir góðan stuðning og sýnir þeim ástarmerki.
Diogo Jota þakkar stuðningsmönnum Liverpool fyrir góðan stuðning og sýnir þeim ástarmerki. Getty/Andrew Powell

Æðstu menn hjá Liverpool, framkvæmdastjórinn Michael Edwards og íþróttastjórinn Richard Hughes sendu í kvöld frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna banaslys Diogo Jota í nótt.

Jota var leikmaður Liverpool og á leiðinni aftur til Englands til að hefja undirbúningstímabilið þegar hann lést í bílslysi ásamt bróður sínum.

„Það er ekkert sem við getum sagt á þessari stundu sem mun draga úr sársaukanum við að upplifa þennan hræðilega harmleik. Við erum algjörlega niðurbrotnir,“ skrifa þeir í yfirlýsingu sinni.

„Á harmþrungnum stundum sem þessari þá er það okkar ábyrgð að átta okkur á hinni sameiginlegu sorg sem við erum öll að upplifa, minnast og heiðra Diogo og í algjörum forgangi hjá okkur er að veita fjölskyldu hans þannig stuðning sem hún þarf á að halda,“ skrifa þeir.

Þeir segja að þetta sé harmleikur sem nær langt út fyrir fótboltafélagið Liverpool.

„Á næstu dögum þá mun félagið leitast til heiðra okkar elskaða númer tuttugu með þeirri virðingu og ást sem hann á svo sannarlega skilið. Við munum leggja hart að okkur svo að það verði þýðingarmikið og allir geti tekið þátt. Diogo skipti okkur öll svo miklu máli,“ skrifa þeir.

„Við vorum að missa mann sem var enginn getur kominn í staðinn fyrir. Hvíldu í friði Diogo. YNWA,“ skrifa þeir en það má sjá allan pistilinn hér fyrir neðan.

  • Statement on behalf of Michael Edwards and Richard Hughes
  • There is nothing that we can say in this moment to ease the pain of such a devastating tragedy. We all feel utterly bereft right now.
  • In such heartbreaking circumstances, it is our responsibility to acknowledge the collective grief we are experiencing, to pay tribute to our Diogo, and to offer unwavering support to his family who remain our absolute priority at this time.
  • Diogo’s wife, Rute, their three beautiful children, his parents and wider family are facing an unimaginable loss. This tragic accident has taken not only Diogo, but also his brother, Andre Silva. We mourn them both equally. We must respect the family’s privacy and give them the space to grieve in whichever way they need.
  • Of course, we – his Liverpool family – are also struggling to come to terms with what has happened. As his teammates, friends and colleagues, we are consumed by shock and sorrow. We know our supporters, his national team, former clubs and teammates and the wider football community share in this grief. This is a tragedy that transcends Liverpool Football Club.
  • In the coming days, we as a club will look to honour our beloved number 20 with the respect and affection he so richly deserves. We will strive to make these tributes meaningful and inclusive of our supporters, to whom Diogo meant so much.
  • For now, we express a love that is filled with deep sorrow and pain. We have lost someone truly irreplaceable.
  • Rest in peace, Diogo.
  • YNWA

Tengdar fréttir

Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota

Diogo Jota, leikmaður Liverpool, lést í nótt ásamt bróður sínum eftir að þeir lentu í bílslysi á Spáni. Nú vitum við meira um hvað þeir voru að gera og hvert þeir voru að fara.

Þorsteinn um fráfall Jota: „Sorglegar fréttir“

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta segir fráfall fótboltamannsins Diogo Jota sorglegar fréttir að fá. Þær setji lífið í stærra samhengi.

Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga

Portúgölsku bræðurnir og knattspyrnumennirnir Diogo Jota og André Silva létust í bílslysi á Spáni í nótt. Fótboltamenn og fleira íþróttafólk, alls staðar að úr heiminum, syrgir fallna félaga sem létust langt fyrir aldur fram. Liverpool fána er flaggað í hálfa stöng fyrir utan Anfield leikvanginn og stórstjörnur senda fjölskyldunni samúðarkveðjur.

Mínútu þögn fyrir leik Portúgals í kvöld

Minning portúgalska landsliðsmannsins Diogo Jota og bróður hans Andre Silva verður heiðruð fyrir leik kvennalandsliðs Portúgals við Spán á EM í kvöld. Jota og Silva létust í bílslysi í nótt.

„Óbætanlegur missir fyrir portúgalska knattspyrnu“

Portúgalska knattspyrnusambandið birti yfirlýsingu á miðlum þess í morgun vegna skyndilegs fráfalls Diogo Jota, landsliðsmanns Portúgal, og bróður hans André Silva. Portúgölsk knattspyrnuhreyfing sé í áfalli og syrgi mæta menn.

Diogo Jota lést í bílslysi

Diogo Jota, leikmaður Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, er látinn eftir að hafa lent í bílslysi í nótt á Spáni. Bróðir hans var með honum í bílnum og lést einnig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×