Arnar Grétarsson tekinn við Fylki Siggeir Ævarsson skrifar 16. júlí 2025 19:52 Arnar Grétarsson er tekinn við Fylki Mynd: Fylkir.is Fylkismenn hafa gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara meistaraflokks karla í knattspyrnu en það er Arnar Grétarsson sem fær það verkefni að rétta skútuna af.
Fylkir er í 9. sæti Lengjudeildarinnar, aðeins einu stigi frá fallsæti og hafa aðeins náð að landa tveimur sigrum í fyrstu tólf umferðum deildarinnar. Árni Freyr Guðnason stýrði liðinu í sumar en var látinn fara fyrir tveimur dögum. Arnar þjálfaði síðast lið Vals í efstu deild en var látinn taka pokann sinn í ágúst í fyrra. Hann hefur einnig þjálfað KA og Breiðablik, sem og Roeselare í Belgíu. Áður var hann yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK Aþenu í Grikklandi og Club Brugge í Belgíu. Í tilkynningu Fylkis um ráðningu segir Arnar að það hafi verið auðveld ákvörðun að taka við liði Fylkis þegar það stóð til boða: „Mér finnst vera mikið „upside“ í því að koma hingað til Fylkis. Hér er fullt af flottum leikmönnum, skemmtilegur völlur og ég hef verið að fylgjast með liðinu. Ég hef oft horft hýrum augum til Árbæjarins, bæði vegna aðstæðna, vallarins og Lautarinnar. Þegar þetta tækifæri kom upp var ákvörðunin því frekar einföld að mínu mati.“ Fylkir hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni en tekur á móti Njarðvíkingum á föstudaginn þar sem Arnar mun væntanlega stýra liðinu í fyrsta sinn.
Lengjudeild karla Fylkir Mest lesið Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Fótbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Leik lokið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ Tékkland - England | Hvað gerir Kane í Prag? „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Gylfi Þór kemur inn í byrjunarlið Íslands Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane 50 Íslendingar meðal 8.500 áhorfenda Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Ætlar að dreifa fé í aðdraganda kosninga Líklegra að Ísland verði í næstneðsta flokki Fluttur á sjúkrahús með alvarlega áverka eftir slys í mötuneyti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Heimir gaf frí Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjá meira