Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Agnar Már Másson skrifar 16. júlí 2025 22:47 Frá Ísafirði. Aðsend Mengun frá eldgosinu sem stendur yfir á Reykjanesskaga hefur náð alla leið til Vestfjarða og hugsanlega líka í Skagafjörð. Myndir þaðan sýna hvernig dökkblátt mengunarský vofir yfir landslaginu.
Suðaustlæg átt hefur stefnt mengun frá eldgosinu alla leið vestur á firði til Ísafjarðar. Fréttastofa fékk sendar myndir frá Ísafirði þar sem þykk þoka hylur fjallstindana í firðinum. Pétur Már Pétursson, vegfarandinn sem sendi myndirnar, segir að himininn líti eins út á Patreksfirði. Virkni í eldgosinu við Sundhnúk hefur að mestu dregist saman en það hefur nú staðið yfir í um sextán tíma. Mengun leggur yfir Ísafjörð.Aðsend Frá Ísafjarðarhöfn.Aðsend Fréttastofu hafa einnig borist myndir af blámóðu úr Skagafirði sem er væntanlega einnig frá gosinu. Aftur á móti sýna mælar á Akureyri mikla svifryksmengun — og mjög slæm loftgæði — sem gæti einnig verið skýringin á blámóðunni á Skagafirði. Aftur á móti er norðvestlæg átt nálægt Ströndum sem gæti hafa hrint einhverri gosmengun í Skagafjörðinn. Í Unadal í Skagafirði er blámóða yfir öllu. Hér er horft til botns Unadals, sem er 14 kílómetra langur og Unadalsjökull sést á venjulegum degi. Ekki núna.Aðsend Hér er horft til sjávar, að Hofsósi, fimm kílómetra leið og yfir Skagafjörð. Tindastóll ætti að sjást handan fjarða en það gerir hann ekki.Aðsend
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Loftgæði Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Sjá meira