Loni Anderson er látin Atli Ísleifsson skrifar 5. ágúst 2025 07:58 Loni Anderson var þekktust fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum WKRP in Cincinnati. AP Bandaríska leikkonan Loni Anderson, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt sem móttökuritari útvarpsstöðvar í gamanþáttunum WKRP in Cincinnati, er látin. Hún lést á sjúkrahúsi í Los Angeles í gær, 79 ára að aldri.
AP greinir frá því að Cheryl J. Kagan, útgefandi Anderson til fjölda ára, hafi greint frá andlátinu, en Anderson hafði glímt við veikindi um nokkurt skeið. Þættirnir WKRP in Cincinnati voru framleiddir á árunum 1978 til 1982 og fjölluðu um útvarpsstöð í Ohio sem á undir högg að sækja og hvernig starfsmenn hennar sem reyna að bjarga stöðinni með því að spila rokktónlist. Auk Anderson léku Gary Sandy, Tim Reid, Howard Hesseman, Frank Bonner og Jan Smithers í þáttunum. Anderson fór í þáttunum með hlutverk móttökuritarans Jennifer Marlowe og hlaut hún tvær tilnefningar til Emmy-verðlauna og þrjár til Golden Globe-verðlauna. Loni Anderson ásamt þáverandi eiginmanni sínum Burt Reynolds. AP Anderson fór einnig með hlutverk í kvikmyndinni Stroker Ace frá árinu 1983 þar sem hún lék á móti Burt Reynolds. Anderson og Reynolds gengu síðar í hjónaband og eignuðust soninn Quinton Reynolds, en þau skildu árið 1994. Mikið var fjallað um skilnaðinn á síðum slúðurblaðanna á sínum tíma, en Anderson gekk alls fjórum sinnum í hjónaband. Anderson lætur eftir sig eiginmanninn Bob Flick, sem hún giftist árið 2008, börnin Deirdra og Quinton, stjúpson og barnabörn.
Bandaríkin Andlát Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira