Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Samúel Karl Ólason skrifar 14. ágúst 2025 21:54 Svona merkingar má sjá víða þar sem áfengi er selt í Kanada. Bandarískt áfengi er orðið sjaldséð í hillum verslana þar. Getty Bandarískir framleiðendur bjórs, víns og annarskonar áfengis, hafa tapað fúlgum fjár vegna mikils samdráttar á útflutningi til Kanada. Nágrannar þeirra í norðri vilja lítið sem ekkert með áfengi frá Bandaríkjunum hafa þessa dagana.
Flöskur frá Jack Daniel‘s og öðrum bandarískum fyrirtækjum hafa að mestu verið fjarlægðar úr hillum verslana í Kanada sitja þær í massavís í geymslum víðsvegar um landið. Í staðinn hafa starfsmenn þessara verslana komið fyrir áfengi frá kanadískum fyrirtækjum. Í samtali við Wall Street Journal segir ritstjóri kanadísks tímarits um viskí að þegar hann hefur verið að halda viskísmakkanir, hafi viðskiptavinir beðið hann um að bjóða eingöngu upp á viskí frá Kanada, Írlandi og Skotlandi. Ekki bjóða upp á viskí frá Bandaríkjunum. „Rauði þráðurinn var sá að þeir voru að sniðganga Bandaríkin,“ sagði Mike Brisebois. Þessa breytingu má að mestu rekja til mjög harðra efnahagslegra aðgerða og hótana Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í garð Kanada. Eins og frægt er hefur hann meðal annars talað um að þvinga Kanada með efnahagslegum aðgerðum til að verða hluti af Bandaríkjunum. Sjá einnig: Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Á þeim sex mánuðum síðan hefur innflutningur Kanadamanna á bandarísku áfengi nánast alveg þornað upp, ef svo má segja. Salan nánast engin The Distilled Spirits Council, hagsmunasamtök áfengisframleiðenda í Bandaríkjunum, áætla að útflutningur sterks áfengis til Kanada hafi á fyrstu sex mánuðum ársins dregist saman um 62 prósent, samanborið við fyrri hluta síðasta árs. Útflutningur víns til Kanada hefur dregist saman um 67 prósent. DSC sendi á dögunum bréf til Hvíta hússins þar sem lýst var yfir áhyggjum af stöðunni þegar kemur að tollaaðgerðum Trumps í garð Evrópusambandsins. Staðan er þó enn verri þegar kemur að sölu í Kanada. Vísað er til Ontario-fylkis, fjölmennasta fylkis Kanada, þar sem bandarískt áfengis seldist fyrir rúmar sjö hundruð milljónir dala í fyrra. Nú er salan sögð svo gott sem engin. WSJ hefur eftir hagsmunasamtökum vínframleiðenda í Kaliforníu að þeir hafi tapað rúmlega 173 milljónum dala á sniðgöngunni í Kanada. Þessir framleiðendur seldu 35 prósent alls víns þeirra í Kanada í fyrra. „Kvikindislegir og illgjarnir“ Kanadamenn Pete Hoekstra, sendiherra Bandaríkjanna í Kanada, sagði á ráðstefnu í Washington DC í síðasta mánuði að stór ástæða þess að Trump talaði um að Kanadamenn væru „kvikindislegir og illgjarnir“ væri sniðganga þeirra á bandarísku áfengi. Þau ummæli féllu ekki í kramið í Kanada en forsætisráðherra Bresku Kólumbíu sagði til að mynda að ráðamenn í Bandaríkjunum virtust hafa mjög takmarkaðan skilning á því hve móðgandi ummæli þeirra í garð Kanada væru. „Halda þeir að Kanadamenn muni ekki bregðast við þegar forsetinn segir: „Ég vil gera ykkur að 51. ríkinu og brjóta ykkur annars niður efnahagslega“?“ spurði David Eby, umræddur forsætisráðherra, í viðtali við Ríkisútvarp Kanada. Finna fyrir færri Kanadamönnum í Las Vegas Það eru ekki bara bandarískir áfengisframleiðendur sem hafa fundið fyrir reiði Kanadamanna. Það hafa eigendur hótela og spilavíta í Las Vegast einnig gert. Þar hefur ferðamönnum fækkað verulega en það sem af er ári er áætlað að þeim hafi fækkað um ellefu prósent, eins og fram kemur í frétt CBC. Tölfræði frá flugvöllum í Kanada sýnir að gífurlegan samdrátt í fjölda farþega þaðan til Kanada. Þegar litið er til þriggja stórra kanadískra flugfélaga fóru tæplega 87 þúsund manns frá Kanada til Las Vegas í júní. Í júní í fyrra var fjöldinn 132 þúsund. Forsvarsmenn nokkurra af stærstu hótelunum og spilavítunum í Las Vegas hafa nefnt fækkun viðskiptavina frá Kanada í samtölum við fjárfesta vegna ársfjórðungsuppgjöra. Þeir segja fækkunina hafa komið niður á rekstrinum en ferðamönnum frá öðrum ríkjum hefur einnig fækkað í borginni.
Kanada Bandaríkin Donald Trump Áfengi Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Fleiri fréttir Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira