Frábær sigur Þórs sem sækir að efsta sætinu Sindri Sverrisson skrifar 17. ágúst 2025 18:05 Sigfús Fannar Gunnarsson með boltann í Breiðholtinu í dag þar sem hann skoraði dýrmætt mark fyrir Þórsara. vísir/ÓskarÓ Sigfús Fannar Gunnarsson skoraði sigurmarkið þegar Þór vann afar dýrmætan 1-0 sigur gegn ÍR í Breiðholti í dag. Óhætt er að segja að toppbaráttan í Lengjudeildinni í fótbolta sé núna í algjörum hnút.
Sigfús Fannar skoraði markið eftir rúmlega klukkutíma leik og hefur þar með skorað ellefu mörk í Lengjudeildinni á þessari leiktíð. Fyrr í dag vann Þróttur 3-2 útisigur gegn toppliði Njarðvíkur en HK gerði 3-3 jafntefli við Grindavík. Staðan í toppbaráttunni er því þannig að Njarðvík er efst með 37 stig, Þór með 36, Þróttur 35, ÍR 33 og HK 31. Efsta liðið kemst beint upp í Bestu deildina en liðin í 2.-5. sæti fara í umspil um hitt sætið sem í boði er. Keflvíkingar sitja í 6. sæti með 28 stig, eftir 4-0 tap gegn Fylki í dag. Það má því búast við afar spennandi baráttu í síðustu fjórum umferðunum og sannkallaður stórleikur verður á Akureyri næsta laugardag þegar Þór og Njarðvík mætast í Boganum. Í neðri hlutanum vann Leiknir óhemju dýrmætan 2-1 útisigur gegn Völsungi og kom sér þannig úr fallsæti. Leiknir er með 16 stig líkt og Selfoss, í 9.-10. sæti, en Fjölnir með 15 og Fylkir 14 í fallsætunum. Völsungur er með 19 stig í 7. sæti. Kári Steinn Hlífarsson skoraði sigurmark Leiknis á Húsavík í dag á 79. mínútu, eftir að Sergio Garcia hafði jafnað metin fyrir Völsungá 70. mínútu. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson hafði skorað fyrsta mark leiksins á fyrstu mínútunni. Upplýsingar um markaskorara eru af Fótbolti.net.
Lengjudeild karla Þór Akureyri ÍR Völsungur Leiknir Reykjavík Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Íslenski boltinn Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti Fleiri fréttir Þór Ak. - Fram | Vígja nýjan völl Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Sjá meira