Súpan með pappírnum innkölluð Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. ágúst 2025 09:52 Hér sést pappír sem Margrét dró upp úr í ausunni og á kassanum. Hún fann meiri pappír en þetta síðar. Aðsend Icelandic Food Company ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum mexíkóska kjúklingasúpu sem Krónan selur undir sínu vörumerki. Neytandi vakti athygli á því í gær að klósettpappír hefði fundist í pakka með súpunni.
Í tilkynningu frá Icelandic Food Company ehf. segir að ástæða innköllunar sé sú að aðskotahlutur, pappír, hafi fundist í einni sölueiningu. Það geri matvælin óhæf til neyslu. Margréti Sigríði Jóhannsdóttur lýsti því í viðtali við Vísi í gær að hafa verið verulega brugðið á sunnudag þegar hún eldaði mexíkóska kjúklingasúpu og fann í henni eitthvað sem virtist vera eldhús- eða klósettpappír. „Ég er bara að hræra og ætla að setja tening í hana og er með systur mína í símanum. Ég er að draga upp sleifina og sé þá eitthvað sem virðist engan enda taka og hugsaði bara: Hvað er þetta?“ Að neðan má sjá upplýsingar um vöruna sem innköllunin einskorðast við. Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við: Vörumerki: Krónan Vöruheiti: Mexíkósk kjúklingasúpa Geymsluþol: Best fyrir 17.09.2025 Nettómagn: 1 l Framleiðandi: Icelandic Food Company ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík Framleiðsluland: Ísland Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru Icelandic Food Company ehf., Vatnagörðum 6, 104 Reykjavík. Dreifing Verslanir Krónunnar um land allt. Leiðbeiningar til neytenda Neytendur sem keypt hafa umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig geta þeir skilað henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Nánari upplýsingar um innköllun Senda má tölvupóst á netfangið icelandfood[hja]icelandfood.is.
Innköllun Matvælaframleiðsla Matvöruverslun Tengdar fréttir Kúgaðist og missti matarlystina við að finna pappír í súpunni Margréti Sigríði Jóhannsdóttur var verulega brugðið í gær þegar hún eldaði mexíkóska kjúklingasúpu frá Krónunni og fann í henni eitthvað sem virtist vera eldhús- eða klósettpappír. Framkvæmdastjóri Krónunnar segir málið miður og að lotunúmer súpunnar hafi verið innkallað. Um sé að ræða mannleg mistök við pökkun. 18. ágúst 2025 13:46 Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira
Kúgaðist og missti matarlystina við að finna pappír í súpunni Margréti Sigríði Jóhannsdóttur var verulega brugðið í gær þegar hún eldaði mexíkóska kjúklingasúpu frá Krónunni og fann í henni eitthvað sem virtist vera eldhús- eða klósettpappír. Framkvæmdastjóri Krónunnar segir málið miður og að lotunúmer súpunnar hafi verið innkallað. Um sé að ræða mannleg mistök við pökkun. 18. ágúst 2025 13:46