Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Tómas Arnar Þorláksson skrifar 19. ágúst 2025 14:49 Loftpúðarnir geta verið gallaðir. Þegar loftpúðinn springur geta myndast sprengiflísar sem springa framan í fólk. Aðsend Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur ítrekað innköllun loftpúða fjölmargra tegunda bíla sem voru framleiddir frá 1998 til 2019. Um er að ræða 31 bílategundir allt í allt. Upphaflega átti umrædd innköllun sér stað fyrir þó nokkrum árum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HMS, en þar sem að fjölmargir eigendur bíla hér á landi hafi ekki sinnt innkölluninni er hún nú ítrekuð. „Um er að ræða stærstu innköllun vegna ökutækja frá upphafi en yfir 100 milljóna loftpúða hafa verið innkallaðir alls staðar í heiminum. Þegar loftpúðinn springur geta myndast sprengiflísar sem springa framan í fólk. Vitað er um 35 dauðsföll um allan heim vegna þessa gölluðu loftpúða,“ segir í tilkynningu HMS. Flestar bíltegundirnar eru í notkun hér á landi. Töluverður fjöldi bíla sem eru í notkun hérlendis hafa ekki skilað sér í innköllun. HMS biðlar til neytenda að kanna stöðuna á sínum bíl. Umræddar bíltegundir eru hér fyrir neðan en þeir sem eru óvissir hvort bíll í þeirra hafi verið innkallaður eru hvattir til að hafa samband við viðeigandi umboð og leita ráða. Acura, Audi, BMW, Cadillac, Citroën, Chevrolet, Chrysler, Daimler, Dodge/Ram, Ferrari, Ford, GMC, Honda, Infiniti, Jaguar, Jeep, Land Rover, Lexus, Lincoln, Mazda, McLaren, Mercedes-Benz, Mercury, Mitsubishi, Nissan, Pontiac, Saab, Saturn, Scion, Subaru og Toyota „Ef þú hefur hunsað tilkynningu umboða um innköllun eða hún farið fram hjá þér þá skaltu hafa samband strax við viðeigandi umboð og bóka tíma þér að kostnaðarlausu,“ segir í tilkynningu. Bílar Innköllun Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira
Upphaflega átti umrædd innköllun sér stað fyrir þó nokkrum árum, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá HMS, en þar sem að fjölmargir eigendur bíla hér á landi hafi ekki sinnt innkölluninni er hún nú ítrekuð. „Um er að ræða stærstu innköllun vegna ökutækja frá upphafi en yfir 100 milljóna loftpúða hafa verið innkallaðir alls staðar í heiminum. Þegar loftpúðinn springur geta myndast sprengiflísar sem springa framan í fólk. Vitað er um 35 dauðsföll um allan heim vegna þessa gölluðu loftpúða,“ segir í tilkynningu HMS. Flestar bíltegundirnar eru í notkun hér á landi. Töluverður fjöldi bíla sem eru í notkun hérlendis hafa ekki skilað sér í innköllun. HMS biðlar til neytenda að kanna stöðuna á sínum bíl. Umræddar bíltegundir eru hér fyrir neðan en þeir sem eru óvissir hvort bíll í þeirra hafi verið innkallaður eru hvattir til að hafa samband við viðeigandi umboð og leita ráða. Acura, Audi, BMW, Cadillac, Citroën, Chevrolet, Chrysler, Daimler, Dodge/Ram, Ferrari, Ford, GMC, Honda, Infiniti, Jaguar, Jeep, Land Rover, Lexus, Lincoln, Mazda, McLaren, Mercedes-Benz, Mercury, Mitsubishi, Nissan, Pontiac, Saab, Saturn, Scion, Subaru og Toyota „Ef þú hefur hunsað tilkynningu umboða um innköllun eða hún farið fram hjá þér þá skaltu hafa samband strax við viðeigandi umboð og bóka tíma þér að kostnaðarlausu,“ segir í tilkynningu.
Acura, Audi, BMW, Cadillac, Citroën, Chevrolet, Chrysler, Daimler, Dodge/Ram, Ferrari, Ford, GMC, Honda, Infiniti, Jaguar, Jeep, Land Rover, Lexus, Lincoln, Mazda, McLaren, Mercedes-Benz, Mercury, Mitsubishi, Nissan, Pontiac, Saab, Saturn, Scion, Subaru og Toyota
Bílar Innköllun Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira