Varar nýju stjörnuna í þungavigtinni við að mæta Usyk strax Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. ágúst 2025 13:01 Moses Itauma er aðeins tvítugur og er spáð miklum frama. getty/Richard Pelham Gamli hnefaleikakappinn Ricky Hatton hvetur Moses Itauma, nýjustu stjörnuna í þungavigtinni, til að hugsa vandlega um næstu skref og ana ekki að neinu.
Itauma sigraði hinn þrautreynda Dillian Whyte með rothöggi eftir tæpar tvær mínútur þegar þeir mættust í Ríad í Sádi-Arabíu á laugardaginn. Itauma hefur unnið alla þrettán bardaga sína á atvinnumannaferlinum, þar af ellefu með rothöggi. Miklar væntingar eru gerðar til þessa tvítuga stráks en Hatton hvetur hann til að flýta sér hægt og vill alls ekki að hann mæti heimsmeistaranum Oleksandr Usyk strax. „Þeir eru að tala um Usyk næst, vá, róum okkur aðeins niður. Usyk á aðeins nokkra bardaga eftir. Ef þú horfir á þungavigtarkappana sem eru að koma fram er leiðin greið fyrir Itauma,“ sagði Hatton. Hann telur að best væri fyrir Itauma að mæta öðrum Breta næst og nefndi til dæmis Fabio Wardley og Frazer Clarke sem mögulega andstæðinga. „Að berjast heima fyrir kveikir í stuðningsfólkinu. Stuðningurinn við hann er alltaf að aukast og það er það sem ég held að ég myndi gera. Bíddu aðeins með Usyk því hann á eftir að verða enn betri. Af hverju að berjast við hann núna? Bættu þig aðeins og berstu svo við hann,“ sagði Hatton sem snýr aftur í hringinn í desember þegar hann mætir Eisa Al Dah. Hatton verður 47 ára í október og hefur ekki barist síðan 2012, fyrir utan einn sýningabardaga fyrir þremur árum.
Box Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Körfubolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Norður-Kórea er ekki með á ÓL og heldur sína eigin vetrarleika Leiðin að bikarnum klár og Hafnarfjarðarliðin mætast Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Tók við verðlaunum sem sá besti í ár með fjórum dætrum sínum Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Segir íslensk félög búin að eyða meira en milljarði í erlenda leikmenn í vetur Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Ólympíuverðlaunin í ár eru verðmætari en nokkru sinni fyrr Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Dagskráin í dag: Íslenskir unglingar berjast um bikar „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Skoða stækkun typpa í skíðastökki Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Elín og Jón Erik fánaberar Íslands Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Framkonur flugu upp í þriðja sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Segir Grikkjanum haldið í gíslingu Sá reynslumesti hættur með landsliðinu Sjá meira