Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Sindri Sverrisson skrifar 23. ágúst 2025 16:20 Eberechi Eze skrifar undir samninginn við Arsenal. Arsenal.com Arsenal hefur nú formlega tilkynnt um kaupin á enska landsliðsmanninum Eberechi Eze frá Crystal Palace. Kaupverðið nemur 60 milljónum punda að meðtöldum 8 milljóna punda aukagreiðslum.
Þessi 27 ára gamli leikmaður er þar með mættur aftur til uppeldisfélags síns, eftir kapphlaup Arsenal og Tottenham um þennan öfluga leikmann sem er sá sjöundi sem Arsenal tryggir sér í sumar. ❤️🤍🔟 Arsenal also confirm Eberechi Eze will wear shirt number 10. ✨ pic.twitter.com/Q4oEG9JM8z— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 23, 2025 Eze spilaði með Palace í fimm leiktíðir og var algjör lykilleikmaður, meðal annars í því að vinna Manchester City í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar í vor þar sem hann skoraði sigurmarkið. Eze lék áður með QPR á árunum 2016-2020 en fór svo í úrvalsdeildina til Palace. Hann hefur leikið ellefu A-landsleiki fyrir England og var í enska landsliðshópnum á EM í fyrra. Arsenal staðfesti í dag að Eze yrði í treyju númer 10 og að hann myndi hitta og kynnast nýju liðsfélögum sínum eftir leikinn við Leeds í dag, en áður hafði þeim möguleika verið velt upp að hann yrði með í þeim leik. Fyrsti leikur Eze með Arsenal gæti því orðið sannkallaður stórleikur, þegar liðið mætir Liverpool á sunnudaginn eftir viku.
Enski boltinn Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Fleiri fréttir „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Sjá meira